Óflokkað
-
Það gengur á ýmsu í veröldinni þessa dagana og umhverfisvænska, en ekki kænska, bandarískra vina vorra birtist með frekar sérkennilegum hætti. Við sem eldri erum höfum lifað tímana tvenna og m.a. getað fylgst með hinum ýmsu tilburðum verndara okkar og vina til að bjarga heimsbyggðinni frá einu og öðru sem þeim finnst ekki vera eins…
-
Það er ráðist á lönd og íbúa þeirra af löndum, eða réttara sagt, af þeim sem fara fyrir ríkjum og í nútímanum er okkur boðið að fylgjast með hervirkjunum, í nánast ,,beinni útsendingu“. Teikningin er fengin úr Heimildinni og mun vera af friðarpostulanum mikla sem telur sig vera að bjarga veröldinni. Flestir miðlar flytja fréttir…
-
Sendiherra Rússlands útskýrði í ræðu hvernig flækjurnar geta verið þegar að því kemur að segja hver er hvað, í þeirri flóknu og margbreytilegu mannlífsflóru sem er í t.d. Rússlandi og Úkraínu og reyndar miklu víðar. Hvað er Úkraína og hvað er Rússland og hver er hvað á landsvæði sem hefur verið hvað íbúa varðar og…
-
Fréttamiðlunum CNN, BBC og RT ber nokkuð vel saman um hvað gerðist þegar kúbversk strandgæsla skaut á bát sem kom þar að landi. CNN.COM segir, að komið hafi til skotbardaga við menn sem komu að landi á Kúbu, menn sem skutu á strandgæsluliða og særðu a.m.k. einn þeirra. Myndin er fengin úr grein CNN. Forseti…
-
Rússneski miðillinn Russya Today fjallar um samningaviðræður sem verið hafa milli Rússa og Úkraína fyrir milligöngu bandarískra stjórnvalda. Myndin fylgir umfjöllun Russya Today. Kröfur Rússa eru þær að gengið verði að því að viðurkenna Donbas sem rússneskt yfirráðasvæði og benda þeir á að um það hafi verið kosið á sínum tíma. Eins og komið hefur…
-
Á BBC.COM er farið yfir það sem er í uppsiglingu gagnvart Íran af hálfu Bandaríkjanna. Það skal tekið fram að ritari er ekki aðdáandi íranska klerkaveldisins og reyndar ekki heldur þess bandaríska, þ.e.a.s. þegar það tekur upp á að beita afli sínu gegn öðrum. Sem hefur reyndar gengið misjafnlega, enda þjóðirnar af ýmsu tagi sem…
-
Við yfirlit fjölmiðla þennan morguninn rekumst við á þetta, sem væntanlega þýðir, að betra sé fyrir ríkissjóð að taka lán, þ.e.a.s. að kjörin séu betri. Að fara úr A upp í A+ hlýtur að vera gott, höldum við sem ekkert kunnum í hagfræðikúnstum, en vitum þó að betra er að græða en tapa! Og síðan…
-
Á rússneska miðlinum Russya today er fjallað um afleiðingar styrjaldarinnar á milli Úkraínu og Rússlands og bent er á, að þó stríðinu ljúki þá sé ekki þar með öll sagan sögð. Sagt er frá því að áfallastreituröskun geti farið illa með mennina sem berjast í stríðinu og vitnað er m.a. til reynslu af styrjöldinni milli…
