Óflokkað

  • Morgunblaðið hefur að undanförnu verið að fara yfir stöðu ýmissa mála í samfélagi okkar og eins og sjá má, er af mörgu að taka en hér eru það skólamálin sem farið er yfir. Fjársvelti Markleysi Ófullnægjandi Nemendur hafa dregist afturúr Einkunnagjöfin og óreiðan Í þessari upptalningu verður ekki meira, en af nógu er að taka…

  • Kínverska alþýðulýðveldið er vinsælt þessa dagana, forsetar Bandaríkjanna og Rússlands heimsækja það með nokkurra daga millibili, fyrir utan það að ritari þekkir vel til mæðgina sem heiðra landið með nærveru sinni þessa dagana. Forseti Bandaríkjanna var í boði Xi fyrir fáum dögum og núna er það Rússlandsforseti sem heiðrar landið með heimsókn sinni og við…

  • The Guardian segir frá skipi sem  var á leið til Norður Kóreu en sökk í Miðjarðarhafi og grunur er um að hafi verið að flytja kjarnorkubúnað frá Rússlandi. Skipið hét ,,Stóri björn“ og myndin sem hér fylgir var tekin þegar það fór eitt sinn um Bosporus. Rússneska flutningaskipið var sagt vera á leið frá St.…

  • Það er kosningabarátta í gangi með öllu því sem tilheyrir, hjá örþjóðinni á eyjunni fallegu í norðanverðu Atlantshafi. Og það er hlegið og rifist og leitað með logandi ljósi að einhverju til að nudda andstæðingnum með; finna honum eitthvað til vansæmdar og hnekkis og það er von að uglan hlægi. Borgarstýra á að hafa misfarið…

  • Í Heimildinni rekst ritari á grein eftir Borgþór Arngrímsson, þar sem sagt er frá rússafælni sem komin er á hátt stig innan danska hersins. Þar er sagt frá manni sem rekinn var úr danska hernum og sem hafði verið giftur konu nokkurri, sem hann hafði kynnst fyrir löngu síðan en sú reyndist vera af rússneskum…

  • Rétt er að taka fram að það sem kemur hér á eftir er aðeins upphaf greinarinnar sem vitnað er til í tenglinum. Sá sem ritar þetta blogg ákvað að birta söguna ekki í heild sinni en hægt er að finna greinina með tenglinum. Myndirnar eru fengnar úr upphaflegu greininni í R.T. Í rússneska miðlinum Russa…

  • Í rússneska miðlinum Russya Today er rifjað upp og farið yfir kjarnorkuslysið í úkraínska kjarnorkuverinu í Chernobyl. Við erum mörg sem munum efir hinu hörmulega slysi sem varð við rekstur kjarnorkuversins í Chernobyl og sem fylgdumst með því af athygli hvernig fara myndi í slagnum við þau ógnaröfl sem losnað höfðu úr læðingi, vegna mistaka…

  • Á mbl.is er sagt frá niðurstöðu athugunar HÍ á inngöngu Íslands í ESB og eins og við mátti búast munu bæði kostir og gallar fylgja því að ganga ínn í sambandið. Svo dæmi sé tekið mun Ísland missa sjálfstæða peningastefnu og mun það fylgja inngöngunni, en menn geta síðan haft sínar skoðanir á því hvort…

  • Komin er upp sú staða, að ekki er hægt að sigla milli Landeyjarhafnar og Vestmannaeyja vegna þess að ekki gengur að halda fyrrnefndu höfninni opinni. Þeir voru til sem vöruðu við því, að raunhæft væri að höfn á þessum stað yrði nothæf til lengdar og nú hefur það sannast að svo er. Landeyjahöfn Staðan er…