Húsnæðisskorturinn og lóðin

Það er kosningabarátta í gangi með öllu því sem tilheyrir, hjá örþjóðinni á eyjunni fallegu í norðanverðu Atlantshafi.

Og það er hlegið og rifist og leitað með logandi ljósi að einhverju til að nudda andstæðingnum með; finna honum eitthvað til vansæmdar og hnekkis og það er von að uglan hlægi.

Borgarstýra á að hafa misfarið með kortaúttektir, andstæðingana skortir málefni og þarna kom það!

Að fara illa með eigin fé er ekki gott og enn verra að fara illa með annarra fé og til að fyrirbyggja allan misskilning, skal það tekið fram, að hér er ekki um að ræða fé sem jarmar.

Steinþegjandi úttektarkort kvartar ekki, er úr plasti þ.e.a.s. gerviefni, sem þolir margt en samt ekki allt og því þarf að fara vel með það.

Ritari þykist góður ef hann finnur sitt eigin kort, því hann notast oftast við símann!

Við vonum og biðjum um, að þau sem kosin verða til að stjórna sveitarfélögum landsins verði vel valin, gott og heiðarlegt fólk, sem vilji sveitarfélögum sínum allt það besta.

Reykjavík var um langan tíma stjórnað af Sjálfstæðisflokknum og það gat komið sér vel fyrir flokksfélagana og síðan flokkinn sjálfann þegar hann vantaði lóð undir sjálfan sig.

Ritari hefur aldrei farið á dansleik í því húsi sem þar var byggt, en man til þess að hafa farið á skrall í því sem áður var og skemmt sér vel.

Nú er svo komið að hin vígalega Valhöll á horni Bolholts og Skipholts hentar flokknum ekki lengur, þó lóðin væri vel útilátin; það getur verið vesen að hirða um stóra lóð og því fór sem fór.

Og nú er hafin þétting byggðar á hinni stóru lóð, þó orðtakið ,,þétting byggðar“, sé sem skammaryrði í munni Sjálfstæðismanna.

Allt er afstætt sagði ekki ómerkari maður en Albert (ekki Guðmundsson) og því er það að við höfum góðan skilning á því að flokkur sem ,,hljóp“ í þvotti vinstri græningja og framsóknar, þurfi að minnka við sig.

Það tekur í, að lenda í vondum félagsskap og úr því þarf að vinna og við verðum að sýna því skilning.

Við óskum öllu því fólki sem býðst til að stjórna og vinna fyrir sveitunga sína og borgunga alls hins besta og vonum að það komi til með að skila góðu verki, sem það geti verið stolt af og við hin líka sem kusum það, hvort sem atkvæðið fór á réttan stað eða ekki!

Færðu inn athugasemd