Í rússneska miðlinum Russya Today er rifjað upp og farið yfir kjarnorkuslysið í úkraínska kjarnorkuverinu í Chernobyl.
Við erum mörg sem munum efir hinu hörmulega slysi sem varð við rekstur kjarnorkuversins í Chernobyl og sem fylgdumst með því af athygli hvernig fara myndi í slagnum við þau ógnaröfl sem losnað höfðu úr læðingi, vegna mistaka sem alls ekki mega gerast við rekstur slíkra vera.

Í miðlinum sem hér er vitnað til er sagt nokkuð ítarlega frá því sem gerist og hvernig við var brugðist þegar ljóst var hvernig komið væri.
Greininni fylgja nokkrar myndir og á þeirri sem hér er að ofan má sjá hvernig stjórnborðið lítur, eða öllu heldur leit út, áður en óhappið varð; óhapp sem rekja má til þess að gerð voru mannleg mistök, en á myndinni sem er hér að neðan, sést orkuverið eftir að ólánið hafði orðið.

Við vitum af fyrri fréttum að menn sem voru við stjórn í verinu, ákváðu að láta reyna á stjórnbúnað þess ef til óhapps kæmi s.s. bilunar af einhverju tagi, sem krefðist neyðarafls sem framleitt yrði með dieselrafstöðvum.
Þarna sannaðist hið fornkveðna að menn eiga ekki að vera að fikta í því sem þeir kunna ekki með að fara og allra síst ef þeir þekkja ekki búnaðinn sem þeir ætla að notast við.
Ýmislegt fór því á annan veg en reiknað hafði verið með og niðurstaðan varð, eitt hið versta kjarnorkuslys sem menn kunna frá að greina.
Óhöpp af þessu tagi haf orðið allt of víða s.s. á svokallaðri Þriggja mílna eyju og í Japan eftir ógurlegan jarðskjálfta og fleiri mætti nefna.
Nokkur dæmi eru talin upp í greininni sem vísað er til hér í upphafi. Ritari hefur ekki farið yfir hvort það er um tæmandi upptalningu að ræða en áhugasamir geta nálgast greinina með því að nota tengilinn.

Ófriðarástand er nú um stundir milli Úkraínu og Rússlands.
Nokkur kjarnorkuver eru á svæðinu og óskandi er, að ekki verði annað óhapp af þessu tagi.
Nefna má að verið í Zaproitsya, sem legið hefur undir sprengjuvarpi frá Úkraínum um langan tíma, en þeir telja það líklega vera sér til framdráttar í hernaðinum, að skaða verið og varnarhjúp þess.
Hvernig þeim getur dottið í hug að leika sér með eld af þessu tagi verður ekki reynt að útskýra hér, en aðeins vonað, að þeim takist ekki að rjúfa steinsteypta skjöldinn sem er verinu til varnar.
Hin hliðin á því máli er, að finna þarf lausn á þeim ágreiningi sem veldur ófriðnum milli ríkjannna, kafa ofan í hver hann er í raun og semja síðan um frið, sem byggir á traustum grunni.

Færðu inn athugasemd