Því hefur verið slegið upp í fréttum að rússneskt skip sé, eða hafi verið á siglingu við Ísland, en þegar betur er að gáð, þá lítur svo út sem búið sé að flytja Ísland í áttina til Noregs.

Og það er vitanlega hið allt um vakandi Rúv sem upplýsir málið og flettir ofan af damli skipsins á hafinu umhverfis landið okkar góða.

Í ljós kemur, þegar að er gáð, að hafið umhverfis Ísland nær allt til Noregs og við gerum ráð fyrir að það sé gagkvæmt!
En til að létta okkur lífið sjáum við þessa umfjöllun um formann Miðflokksins sem alltaf veit hvað það er sem skiptir mestu máli:

Njótið dagsins!

Færðu inn athugasemd