Það ríkir ófriðarástand í heiminum sem eðlilegt er að hafa áhyggjur af og við vitum ekki hvernig það ástand leysist ef það þá gerir það, sem við vonum væntanlega flest að verði.
En það er ýmislegt fleira sem vert er að hafa áhyggjur af, eins og s.s. það sem sagt er frá í þessari frétt CNN.
CNN.COM segir frá breytingum sem eru að verða í hafinu í grennd við Ísland.

Í upphafi greinarinnar segir: ,,Í Norður-Atlantshafi, sunnan við Grænland og Ísland, er eitthvað mjög undarlegt að gerast á stóru svæði í sjónum.
Þó hafið sé að hitna hefur það verið að kólna á þeim slóðum.
Í nýrri rannsókn telja menn sig hafa komist að skýringu á þessu sem er, að um sé að ræða ógnvænlegt merki um að komið sé að að vendipunkti í loftslagsbreytingunum .„
En að öðru.
Í Heimildinni er fjallað um ástandið sem er í miðausturlöndum þ.e. nágrannalöndum Ísraels, þar sem vaðið er yfir með herafli, fólk drepið og hrakið af heimilum sínum þ.e.a.s. ef þau eru þá uppistandandi, því algengast er að allt sé í rúst s.s. sjá má á Gaza.

Mynd úr grein Heimildarinnar
Áður var það Gaza en nú er það Líbanon og útþenslan er alls ekki hætt.
Forystumenn Ísraels eru að skapa sögu sem við áttum ekki von á að yrði og alls ekki, að hún yrði sköpuð af þjóðinni sem þola mátti hinar viðbjóðslegu aðfarir nasista.
Bandarískir ráðamenn vilja ráða heiminum og stjórna, það er s.s. ekkert nýtt og þau eru æði mörg löndin sem orðið hafa þeim að bráð.
Vietnam, Írak, Kúba, Venesúela og fleiri oig fleiri…
Þeir sem ráða för fara sínu fram, en það er ekki endilega víst að bandaríska þjóðin sé öll ánægð með það sem er að gerast.
Hvað verður vitum við ekki, en dýrmætt væri ef það tækist að stilla til friðar.
Við lifum í voninni!

Færðu inn athugasemd