Sá sem þetta ritar hefur lengi verið áhugasamur um fljúgandi furðuhluti s.s. fljúgandi diska og annað í þeim dúr og svo er fyrir að þakka, að bandarískir ráðamenn og almenningur(?) í því ágæta ríkjasambandi er heillaður af fyrirbærunum líka.


Myndirnar sem fylgja frásögn Vísis og eins og sjá má, upplýsa þær málið!
Á visir.is er umfjöllun um þessi merkilegu fyrirbrigði, sem af einhverjum ástæðum angra Bandaríkin heldur meira en aðra og af því að þar á bæ kunna menn að afgreiða málin, þá eru fyrirbærin skotin niður bæði fljótt og örugglega.
Það er sem sagt ekki verið að bjóða aðkomuverur utan úr geimnum velkomnar á þeim bæ, enda ónæðið sérlega mikið sem USA-ar verða fyrir af þessum geimfyrirbrigðum.
Ritari hélt mikið upp á þau Mulder og Skully sem voru sýnd honum til ómældrar ánægju í ,,sjónvarpi allra landsmanna“ fyrir nokkrum árum og seint gleymist stríðið sem Biden forseti USA átti í, við flygildi af þessu tagi.
Þegar betur var að gáð reyndust þau vera saklausir ,,drónar“ sem einhverjir höfðu keypt sér í einhverjum dótabúðum og bandarískir strákar, líkt og aðrir strákar, stóðust ekki freistinguna og flugu þeim upp í loftið Biden og félögum til mikillar hrellingar og þegar við bættist innrás loftfara frá Kína …. ja, þá leið Biden og félögum illa.
Þeir voðalegu veðurbelgir ógnuðu heimsfriðnum!
Við höldum og vonum, að strákarnir hafi sloppið við rafmagnsstólinn en forsetinn missti forsetastólinn enda hrumur orðinn og þreyttur.
Við tók annar sem sumir kalla ,,hnykk og rikk“ en það verður ekki gert hér og því köllum við hann sínu rétta nafni þ.e. Trump.
Sá er í sífelldum stríðsleikjum sem enginn botnar í og síst af öllu hann sjálfur, – höldum við, en vonandi hefur hinn yfirvegaði og ráðsetti Xi getað róað taugar mannsins pínu lítið og vonandi örlítið meira en það.
En flygildin eru enn á ferðinni og nú er þau skotin niður með bandarískum stæl!

Færðu inn athugasemd