Ríkisútvarpið greinir frá því að gerð hafi verið drónaárás á rússneskt herskip í Finnskafóa. Það skal tekið fram að hvergi kemur fram í fréttinni hver heimildin er en ótrúlegt verður að telja að Ríkisútvarpið hafi verið með fréttamann á staðnum.

Með fréttinni fylgir kort af flóanum en hvar skipið hefur verið statt er ekki augljóst nema að reikna megi með því að rauði dropinn eigi að tákna staðsetninguna. Hvort það er rétt vitum við ekki neitt um.
Við reiknum ekki með því að fréttamaðurinn hafi verið á svæðinu en hafi svo verið mætti taka það fram.
Fullyrt er að vegalengdin sem dróninn hefur flogið sé um 2000 km og að hann hafi komið frá Úkraínu en við erum litlu nær sem stendur. Ritari er búinn að kíkja í CNN.COM en tókst ekki að finna fréttina þar.
Þá var litið á The Guardian og ekkert fannst þar og við tók bbc.com og viti menn, þar er fréttin!
Nú eru við komin það langt að freistandi er að skoða bresku útgáfuna sem byrjar svona:
,,Finnish officials have confirmed that a Russian warship was attacked in the Gulf of Finland on Wednesday, although little is known about the strike“.
Líkurnar á því að hún hafi verið spunnin upp í Efstaleiti eru horfnar og eins og sjá má getum við fræðst meira um málið og við sannfærumst líka um að hið rúvíska fimbulfamb byggir á einhverju.
Lesari ætlar að styðjast við fréttina í bbc.com.
Fram kemur að Finnar hafa verið duglegir að styðja Úkraínu í stríðinu og að þetta muni vera í fyrsta skipti sem gerð er úkraínsk árás á þetta svæði.
Undirritaður man talsvert eftir þessu hafsvæði síðan hann var í millilandasiglingum og honum hefði seint dottið í hug að það gæti verið lífshættulegt að fara þar um vegna loftárása frá Úkraínu!
En það er ekki gott að segja hvar flygildi frá Úkraínu lenda og ekki síst þegar farið er að senda þau svona langt.
En hvað sem því líður, þarf að finna lausn á þessu úkraínumáli áður en stórslys hlýst af því svo er að sjá sem a.m.k. úkraínskir ,,stjórnendur“ sjáist lítt fyrir.
Það kom reyndar strax fram t.d. í árásum þeirra á kjarnorkuverið í Zaporizhzhja svo dæmi sé tekið, þar sem eftirlitsaðilar frá Sameinuðu þjóðunum máttu þakka fyrir að geta forðað sér áður en enn ein úkraínsk tilraun yrði gerð til að sigrast á varnarbrynjunni sem verndar verið.
Þegar það tókst ekki, var allt gert sem hægt var til að rjúfa lagnirnar sem fluttu okruna frá því, í þeirri von að það yfirhitnaði og að allt yrði eins og í Chernobyl!
Það tókst ekki, en þeir gætu reynt aftur.

Færðu inn athugasemd