Margt er gott í Mogga

Í yfirferð yfir Morgunblað dagsins sjáum við margvíslegt efni.

Hér að ofan er verið að fjalla um hnútuköst sem gengið hafa milli fyrrverandi forseta og núverandi utanríkisráðherra og það verður að segjast eins er að Ólafur lætur Þorgerði ekki eiga neitt inni hjá sér.

Skjáskot úr Morgunblaðinu

Það er meira blóð í kúnni og við sjáum að teiknari Morgunblaðsins hefur náð að festa stöðu heimsmálanna í teikningu sem við gerum ráð fyrir að hafi orðið til eftir að niðurstaða kosninganna í Bandaríkjunum var orðin ljós.

En hjá okkur er það nýting auðlindanna sem heldur þjóðarbúinu á floti.

,,Það er fleira matur en feitt kjöt“ og því er það að augum hefur verið beint víðar en til sjávarauðlindanna.

Það er m.a. orkunýtingin sem heldur okkur á floti og skapar velsæld. Til að nýta orkulindirnar þurfum við menn með þekkingu til að útfæra hvernig skuli að verki staðið.

En þeir eru til sem ekki skilja þetta og vilja fara vinstrigrænu leiðina og halda að sér höndum og vona að allt komi þetta nú af sjálfu sér, auk þess sem þeir virðast trúa því að það sé ,,bara hægt að gera eitthvað annað“.

Þjóðin hafnaði þeirri speki og er auk þess svo heppin að í ráðherrastól orkumála er kominn framsýnn og dugandi maður.

Við vel skipað lið á réttum stöðum er það sem þarf fyrir litla þjóð.

Færðu inn athugasemd