
Fyrrverandi forseti þjóðarinnar ráðleggur utanríkisráðherra um hvernig skuli orða hlutina.

Það getur verið gott að ganga gætilega um og líta í kringum sig áður en farið er yfir brúnina.
Það finnst sjálfsagt einhverjum að kominn sé tími til að utanríkisráðherra okkar sé ráðlagt eitt og annað um hvernig skuli orða hlutina þegar utanríkismálin eru annars vegar.
Að hafa það fyrir meginreglu að segja sem fæst í sem flestum orðum er ekki góður siður þegar talað er til ráðamanna annarra þjóða.
,,Orðum fylgir ábyrgð“ og á það bendir Ólafur Ragnar Grímsson í frétt á mbl.is, sem hægt er að nálgast með tenglinum sem er hér í upphafi þessara lína.
Eftirfarandi er haft eftir Ólafi skv. mbl.is:
,,„Í ljósi víðtækra hagsmuna Íslands þá vona ég að aðrar yfirlýsingar utanríkisráðherra lýðveldisins séu ekki jafn fjarstæðukenndar og óheiðarlegar og ummæli hennar í morgun um mig,“ segir Ólafur Ragnar.“

Færðu inn athugasemd