
Grein eftir Indriða Þorláksson birtist í Heimildinni og veldur hugleiðingum a.m.k. þess sem þetta ritar. Yfirskrift hennar er: ,,Virkjanir og virðisauki“ og óhætt er að segja að hún, þ.e.a.s. fyrirsögnin, nái að upplýsa um efnisinnihald greinarinnar.
Við sem ekki höfum skilninginn, teljum að gott sé að beisla orkuauðlindir þjóðarinnar til að afla henni tekna en við lestur greinarinnar kemur annað í ljós þ.e.a.s. að það er alls ekki gott né rétt mat.
Nú getur vel verið að við séum ekki á réttri leið og að betra en best, sé að hverfa til fortíðar og frummennsku.
Ekki má skilja orð þess sem þetta ritar á þann veg að það sé meining greinarhöfundar.
En það ber að skilja orð þess sem þetta ritar á þann veg að það verði ekki verði ekki bæði sleppt og haldið.
Lífið hefur þróast á þann veg að við viljum búa í húsum, ferðast í bílum, skipum og flugvélum og tollum helst ekki kyrr á ,,réttum“ stað nema um skamman tíma og skilt er að taka það fram, að ,,skammur“ tími er teygjanlegt hugtak sem fer dálítið eftir mati þess sem metur.

Færðu inn athugasemd