Í rússneska miðlinum Russya Today er sagt frá því að flutningar á olíu til Bandaríkjanna séu hafnir og að þrjú risaolíuskip séu þegar lögð af stað.
Hvernig það getur gerst að skipin nái að lesta og sigla frá Svartahafinu án árása frá Úkraínu er ekki skýrt fyllilega, en gera má ráð fyrir að eitthvað meira sé á ferðinni eins og t.d. hugsanlega samningur milli Úkraínu og Bandaríkjanna.

Mynd úr R.T.
Eins og sjá má er ekki um að ræða neina smábáta og ritara er nær að halda að litlu olíuskipin sem notuð voru til að dreifa olíu um Ísland, áður en menn komust að því að best væri að gera það með flutningabílum á lélegum vegum, að þau skip hefðu getað verið þversum á skipunum sem myndin sýnir.
Hvað sem vangaveltum um það líður þá er gott til þess að vita að eitthvað jákvætt sé að gerst í þessum málum og vonandi fleiru, varðandi hið ömurlega stríð sem verið hefur milli Úkraínu og Rússlands.
Löndin hafa reyndar í sögulegu tilliti ,,rekist“ á hvað eftir annað og hvort það tekst að hindra endurtekningu á þeirri sögu, vitum við ekki um, en vonum það besta.
Á íslenska Rúvinu er stríðið sem nú er í gangi ,,skilmerkilega“ kallað innrásarstríð Rússa en ekki hefur á þeim vettvangi sést ítarleg umfjöllun um aðdragandann að þeim hildarleik.
Það er auðvelt að stilla smáþjóðum sem glíma við stórþjóðir upp sem fórnarlömbum en til að það standist, þurfa þær að vera það í raun.
Ýmislegt var búið að ganga á í Úkraínu sem allir geta kynnt sér, áður en innrásin var gerð og hver gerði hverjum grikk á þeim tíma er bæði loðið og teygjanlegt.
En hvað sem því líður bera að fagna öllu sem bendir til friðsamlegra lausna á þessu ömurlega ástandi og finna þarf lausn á því hvað sé Úkraína og hvað ekki, en eins og við vitum er það bæði loðið og teygjanlegt og ef til vill á það sinn þátt í því hve illa gengur að finna lausnina.
Fyrir nú utan það, að sumum þykir ágætt að Rússar eigi í þessari glímu en það er annað mál sem þarfnast sálrænna skýringa.

Færðu inn athugasemd