CNN.COM fjallar um ,,vináttuna“ sem sem er, eða réttara sagt var, milli forseta Bandaríkjanna og forsætisráðherra Ísraels.

Þau eru vinir þessi, þó ólík séu og þannig getur það líka verið meðal manna.
Það er ekki gott að segja til um hver er ,,vinur“ hvers og hvers er hvurt, þegar pólitík blandast inn í matið, en vissulega munum við, að svo virtist sem hjörtu þessara manna sem nefndir voru hér í upphafi- slægju í takt og það ekki fyrir svo löngu síðan.
Það er hins vegar þannig í stjórnmálunum, að ekki er gott að segja hver er vinur í raun og líklega væri réttast að nota ekki orðið ,,vin- átta“ þegar rætt er um samband milli æðstu manna ríkja.
Hvernig var þetta og hver slengdi því fram: Að það gæti verið velverið að Sigga væri sætari en að það sé betra að vera með Gunnu?!
Í stjórnmálunum er vinátta fallvölt og það gildir jafnt um þá sem fara fyrir stórveldum sem minni ríkjum, svo sem nýlegt dæmi er um s.s. þegar veðurbreytingar verða í stjórnmálunum á Alþingi Íslendinga.
Hvort Netanjahú er meiri vinur Trumps, en Trump er vinur hins fyrrnefnda, verður ekki kveðið upp úr í þessum pistli, en eitthvað er pólitíska veðurspáin ekki góð þessa dagana varðandi samband þessara manna.
Að vera treyst fyrir ríki hefði maður talið að fylgdi ábyrgð, a.m.k. svona fljótt á litið, en vera kann að það sé á misskilningi byggt!
Við lifum í voninni um að heimsbyggðin fari ekki fram af brúninni, búumst við því versta, en vonum það besta í þeirri von að það fyrrnefnda verði ekki niðurstaðan.

Færðu inn athugasemd