Samtök í vanda

Í Bændablaði því sem út kom þann 23. janúar sl. er vandinn sem blasir við Bændasamtökunum tekinn til umfjöllunar. 

Á bls. 2 er greint frá því að formaður Landsamtaka kúabænda gefi ekki kost á sér til endurkjörs en í sama dálki, er líka sagt frá því að Guðrún Sigríður Tryggvadóttir núverandi formaður Bændasamtakanna ætli að gefa kost á sér til kjörs á Búnaðarþingi því sem haldið verður þann 2. mars í Bændahöllinni í Reykjavík. Guðrún tók við formennsku eftir að Sindri Sigurgeirsson hætti 2018. 

Guðrún segist vilja leggja sitt að mörkum til að gera landbúnaðinn ,,öflugri og sterkari í samfélaginu“. Hún er með kennaramenntun og er fyrsta konan til að veita Bændasamtökunum forystu, rekur sauðfjárbú og stundar ferðaþjónustu á bænum Svartárkoti í Bárðardal í Suður Þingeyjarsýslu. 

Á bls. 4 í blaðinu er svo sagt frá því, að kosinn hafi verið nýr formaður félagsskaparins ,,Samtök ungra bænda“ sem samþykktu í leiðinni kröfulista um ,,nýliðunarstuðning“ auk endurskoðunar um þann sama stuðning og eflingu rannsóknarstarfs í landbúnaði.

Þá vilja þeir að komið verði í veg fyrir ,,uppkaup auðmanna á jörðum“, fjölgað verði plássum í Landbúnaðarháskólanum og að lokum krefjast þeir þess að stjórnvöld berjist gegn sýklalyfjaónæmi. 

Það er síðan í leiðara blaðsins, sem formaðurinn ritar, að málefni B.Í. eru tekin til umfjöllunar en þar kemur fram að tekjur samtakanna hafi minnkað um rúman þriðjung frá því sem var á meðan hið ólöglega ,,búnaðargjald“ var innheimt.

Þar er sagt að um sé að ræða úrlausnarefni sem finna verði lausn á, því að  ,,það er ekki ókeypis að reka öfluga hagsmunabaráttu. Slagkrafturinn verður mun meiri ef við stöndum þétt saman.“  

Segir þar og er það vafalaust rétt metið, en sé það niðurstaðan, þá verða menn líka að vera opnir fyrir því  að gera Bændasamtökin aðlaðandi sem hagsmunagæslusamtök fyrir þá sem eru í landbúnaði. Það er auðvelt að halda því fram að svo sé ekki, nema þá fyrir rúmlega eina búgrein.  

Aðsend grein er í blaðinu eftir Guðna Ágústsson fyrrverandi landbúnaðarráðherra á bls. 33. Greinina finn ég ekki á vef blaðsins, en tæpast er það ofsagt að hún sé þung ádeila á hvernig komið er fyrir Bændasamtökunum.  

Guðni telur að bændur verði að finna samtökum sínum nýjan farveg líkt og fyrirtæki í sjávarútvegi hafa gert og stofna það sem hann kallar ,,Samtök félaga og fyrirtækja í landbúnaði”. Ég tel víst að Guðni sé þar með í huga, þá stöðnun og innbyggðu skekkju sem er innan Bændasamtakanna.  

Skekkju sem stafar af því að samtökin hafa ekki breyst í takti við  breytta tíma. Það er liðin tíð að lambakjöt sé étið alla þá daga sem ekki er ýsa á íslenskum heimilum og það má meira að segja sjá á þeim tölum sem Bændablaðið hefur birt.  

Íslenskir neytendur vilja fjölbreytni og hafa tileinkað sér siði annarra þjóða; neyta margra kjöttegunda og grænmetis af ýmsu tagi. 

Þessa sést í fáu stað hjá B.Í. og uppbygging samtakanna miðast við fortíðina.  

Ekkert tillit er t.d. tekið til markaðshlutdeildar búgreina við val á fólki í trúnaðarstöður. 

Allt miðast við regluna ,,hver maður eitt atkvæði” og engu skiptir hvað að baki býr, né hverra hagsmuna er verið að gæta. Og svo dæmi sé tekið, þá á búgreinin sem framleiðir og selur mest af kjöti markaðnum einn fulltrúa á Búnaðarþingi því sem nú fer senn að koma saman, en kindakjötsframleiðendur fjölmarga.  

Sama gildir um svínakjötsframleiðendur og nautgriparæktin og garðyrkjan eru ekki heldur ofalin á þessum fjárhúsgarða. Allt miðast við fjölmennustu greinina: Sauðfjárræktina. 

Guðni segir Bændasamtökin vera fjárvana og illa komin félagslega, fyrrverandi formaður sé flúinn og að núverandi formaður megi sig ekki hræra og síðan að Sigurði Eyþórssyni hafi verið falið það hlutverk að annast útför samtakanna!  

Hér er kveðið fast að orði og hreint ekki ólíklegt að ráðherrann og þingmaðurinn fyrrverandi hafi hitt naglann á höfuðið og að senn muni finnast annað og nútímalegra form fyrir samtök bænda og að þau verði þá eins og hann stingur upp á ,,Samtök félaga og fyrirtækja í landbúnaði”. 

Færðu inn athugasemd