Ekkert er nýtt undir sólinni

Morgunblaðið segir okkur frá því að þessir fallegu fuglar hafi ,,litið við“ og ekki nóg með það ,,að þeir hafi aldrei sést hér fyrr“.

Aðrir tvífættir gestir hafa líka verið á ferðinni, kíkt við og hafa vakið hrifningu hjá sumum en ekki öllum.

Við sjáum dæmi þess á myndinni til vinstri og við sáum dæmi þess um árið þegar forseta Úkraínu var ekið á Þingvöll.

Þannig er það og þannig hefur það lengst af verið, að þá einn kemur þá annar fer.

Vitanlega er gaman að því að menn finni hjá sér hvöt til að heimsækja landið okkar en hvort ,,sjálfstæðismenn“ hafa eitthvað haft út úr því að flandra vestur um haf vitum við ekki, en vel getur það verið nærandi fyrir sálina að lyfta sér upp og bregða sér af bæ; þau gerðu það og virðast kát á myndinni.

Ekki veitir af upplyftingu þegar fylgið fjarar út en hvort vesturferðin verður til að lyfta því í nýjar hæðir er ekki gott að segja.

Bláminn er í vestri samkvæmt bókinni hjá þeim og víst kemur margt gott úr því landi sem þau heimsóttu, væntanlega til þess að sækja sér nýjan og betri innblástur.

Tíminn leiðir í ljós hvering hinn vestræni andi hefur virkað en við vitum að viðtakan hefur verið góð.

Færðu inn athugasemd