Enn er rætt um nýjan Tækniskóla og nú er það höfuðborgin sem hleypur í skarðið, eftir að ,,framsókn“ tæknimenntunar til Hafnarfjarðar er úr sögunni.

Fjallað hefur verið um málið í Heimildinni og þar sjáum við að niðurstaðan er að skólinn verður Reykjavík.

Myndirnar eru úr umfjöllun Heimildarinnar um tækniskólamálið.
Menn gætu haldið, sé tekið mið af umræðunni, að engin tæknimenntun fari fram í landinu en svo er vitanlega ekki.
Til áratuga hefur t.d. tæknimenntun vélfræðinga farið fram í húsnæði Sjómannaskólans, húsnæði sem búið er að þrengja að með með ýmsu móti og þ.á.m. íbúðarblokkum sem staðsettar eru örskammt frá vélasal Vélskólans.
Í upphafi skyldi endinn skoða er sagt, en það hefur ekki verið gert og því hringsnúast menn í hugmyndaheimum við að finna stað fyrir tæknimenntun vélstjóra.
Síðustu misseri hafa nemendur Vélskólans ekið allt til Hafnarfjarðar til að stunda smíðanám í ,,vélsmíði“!
Að það sé vel farið með tíma þeirra sem eru í ströngu námi, verður að teljast vafasamt.
Fyrir nokkrum árum fannst mygla í húsnæðinu sem hýsti verklega tæknimenntun vélfræðinga og víð því var brugðist með því að loka mygluna inni og grípa síðan til þeirra úrræða að nemarnir færu á flandur á milli sveitarfélaga.
Að það sé vel farið með tíma ungmenna sem eru í ströngu námi að berjast í gegnum umferðahnúta höfuðborgarsvæðisins til að komast að og frá Sjómannaskólanum til að sinna námi í véltækni í Hafnarfirði, má eflaust hafa ýmsar skoðanir á.
Ritari þessara pistla stundaði kvöldskóla í Breiðholti þegar hann var að ljúka sínu námi á þessu sviði og er þakklátur þeim sem leiddu og leiðbeindu hópnum sem það gerði.
Að hann hefði farið að flandra til Hafnarfjarðar hefði tæplega komið til greina enda hægt að finna sér margt fleira og betra til að drepa tímann en að flandra á milli sveitarfélaga.
Að svo sé komið fyrir eyþjóðinni, að hún geti ekki búið nemendum í námi til að þjóna tæknibúnaði skipa þjóðarinnar o.fl. er ótrúlegt.
En eins og fram hefur komið er ævintýrið um þriggja hektara tækniskóla í Hafnafirði úr sögunni, í bili að minnsta kosti.

Færðu inn athugasemd