Óflokkað
-
Það er þriðjudagur og lífið gengur sinn gang, líkt og á miðvikudeginum forðum og í fréttum sjáum við að ýmislegt hefur gerst eins og venjulega og sumt af því sem gerst hefur, líkar okkur vel en annað ekki. Af því að landið okkar Ísland, er af eðlillegum ástæðum ofarlega í huga okkar margra, þá hugsum…
-
Við förum létt í þetta til að byrja með, en þyngjum það kannski þegar á líður. Á myndunum, sem fengnar eru annars vegar af visir.is (Halldór) og hins vegar af mbl.is (Ívar) sjáum við tekið á orkumálunum á hraðsoðinn og gamansaman hátt. Á þeirri til vinstri er túlkun á húllumhæinu sem fram fór í Abu…
-
Til stendur að ,,kolefnisjafna“ flakk yfir áttatíu fulltrúa til Abú Dabí á dögunum, en menn vita bara ekki hvernig. Best hefði verið að sleppa flakkinu og gera eitthvað þarfara, en það verður ekki gert úr því sem komið er og því þarf að klóra yfir og það verður örugglega gert með tilþrifum, líkt og oftast…
-
Það þykir ekki gott að ,,vera tekinn í bólinu“ eins og það er kallað og því má bæta við að ,,sannleikanum verður hver sárreiðastur“. Það eru talsverð sannindi sem felast í þessum tveimur orðtökum eða málsháttum úr íslensku tungutaki. Á CNN og áður á NYT er sagt frá því að leyniþjónusta Ísraels hafi vitað fyrirfram og hafi vitað um nokkurn tíma, að…
-
Það sem helst ber til tíðinda þessa dagana er að innviðurinn í ríkisstjórninni skrifar undir eitt og annað, en hann er ekki einn svo við snúum okkur að öðru. Það hefur verið í fréttum í gær og kannski lengur, að reynt var að skipta um lit á utanríkisráherranum – fyrrum fjármálaráðherra – og það merkilega…
-
Órólega deildin í Framsóknarflokknum klauf sig út úr flokknum eins og við munum, stikaði frá Háskólabíói yfir á Hótel Sögu, lagðist undir sæng og stofnaði í framhaldinu nýjan flokk sem fékk var nafnið Miðflokkur. Miðflokkurinn er smáflokkur sem minnkaði enn, þegar í ljós kom eftir ,,Borgarneskosningarnar“ að einn þeirra sem boðið höfðu sig fram í…
-
Maðurinn sem gerði það svo ljómandi gott í Úkraínu er til umfjöllunar hjá Fréttastofu Ríkisútvarpsins, þar sem vitnað er til erlendra miðla, s.s. BBC, CNN og N.Y.T. Þar kemur fram að hann hafur komið við víðar og við bætist Kína. Við sem týnum einu og öðru og jafnvel stundum sjálfum okkur, finnum dálítið til með manninum…
-
Formaður Samfylkingarinnar tók til umræðu á Alþingi hvernig skráningu á leiguhúsnæði fyrir ferðamenn getur verið háttað. Í ljós kom að fyrir tilstuðlan fjármálaráðherra er hægt að reka gistiþjónustu fyrir ferðamenn í húsnæði sem skráð er sem almennt íbúðarhúsnæði. Og það geta verið heilu blokkirnar! Í frásögn Ríkisútvarpsins í hádegisfréttum í dag þann 7. desember mátti…
-
Heyflutningar Á sjöunda áratug síðustu aldar, var staðan erfið hjá bændum á Austurlandi og víðar, en mun betri hjá sunnlenskum bændum. Þá var gripið til þess ráðs að binda hey í bagga til að minnka rúmtak þess og flytja það þannig með skipum til þeirra sem á þurftu að halda. Myndin sem hér fylgir með var…
-
Fólk er saman komið í hlýjunni og huggulegheitunum í Abu Dhabi til að ræða loftslagsmál og sölu á olíu. Það er gott til þess að vita að gott fólk geti fundið sér eitthvað til dundurs og skemmtunar. Og ekki er verra að það sé gert án útgjalda fyrir viðkomandi, að reikningurinn sé sendur vandræðalaust á…
