Óflokkað

  • Enginn virðist vita hve mörg við erum og tölur eru rúnnaðar af, þannig að þær eru ekki traustvekjandi. Frá þessu skrýtna máli er sagt á mbl.is og venjulegur Mörlandi klórar sér í höfði! Við eru ekki 400.000 eins og haldið hafði verið fram heldur 14.000 færri. Það er sem íbúar eins sveitarfélags hafi flutt úr…

  • Köttum þykir gott að kúra eins og við vitum og hér sjáum við dæmi um hve gott þeim getur þótt að kúra sig nokkrir saman.

  • Það virðist hafa sloppið í gegnum nálaraugu virkjana- og orkuöflunarandstæðinga að unnið er að því að stækka Sultartangavirkjun. Hvernig það má vera að svona framkvæmd hafi sloppið framhjá fortíðarþráhyggjunni er ekki gott að segja en það er að gerast, þó ótrúlegt sé. Búið er að skipta út rafölum virkjunarinnar og aflið eykst um 8 MW…

  • Sérvitringurinn vill éta á hvolfi en mér finnst betra að virða fyrir mér útsýnið!

  • Þessi sat á runnanum fyrir utan gluggann hjá okkur um daginn.Ég var farinn að halda að eitthvað væri að honum, en þá kom í ljós að hann hafði bara verið að horfa á sjónvarpsfréttirnar. Að þeim loknum flaug hann á brott!

  • Of marg­ir stjórn­mála­menn ríkra landa og bar­áttu­fólk í lofts­lags­mál­um gleym­ir því að stór hluti heims­ins er enn fast­ur í kvik­syndi fá­tækt­ar og hung­urs. Samt eru rík lönd í aukn­um mæli að skipta út þró­un­araðstoð sinni fyr­ir út­gjöld til lofts­lags­mála. Alþjóðabank­inn, sem hef­ur það að meg­in­mark­miði að leiða fólk und­an oki fá­tækt­ar, hef­ur nú til­kynnt að…

  • Góðan daginn félagi, hvað segir þú í dag?

  • Bændum í Evrópu er nóg boðið og mótmæla kröftuglega t.d. í Berlín og París, finnst sem komið sé nóg og láta vita vel af sér. Rætt var um málið, í fréttum Ríkisútvarpsins, við fréttamann sem staddur var í Evrópu og hann spurður út í mótmæli evrópskra bænda. Hann gerði ekki mjög mikið úr þeim, en…

  • Reykjavík er orðin með fegurstu borgum, þökk sé þeim sem haldið hafa um taumana síðustu árin. Það sem undirritaður man einna fyrst eftir sem valdið hefur straumhvörfum, eru mannvirki s.s. Perlan og aðsetur borgarstjórnar í norðurenda Tjarnarinnar. Síðan gerðist það að til valda komust þau sem sáu vítt yfir sviðið og gerðu meira af mörgu.…

  • Lífið fer misjafnlega með fólk og eins og við vitum endast menn misvel og munum það að konur eru líka menn. Maðurinn sem er á myndunum hér að ofan, hefur margt fengið eð reyna á lífsleiðinni og eins og við vitum flest, eða a.m.k. mörg, þá er hann forseti vorldugasta ríkis veraldar og engin hætta…