Það þykir ekki gott að ,,vera tekinn í bólinu“ eins og það er kallað og því má bæta við að ,,sannleikanum verður hver sárreiðastur“.
Það eru talsverð sannindi sem felast í þessum tveimur orðtökum eða málsháttum úr íslensku tungutaki.

Á CNN og áður á NYT er sagt frá því að leyniþjónusta Ísraels hafi vitað fyrirfram og hafi vitað um nokkurn tíma, að Hamas samtökin hygðust gera árás.
Illur á sér ills von, svo haldið sé áfram að vitnað í gamla málshætti, en eitthvað varð til þess að stjórnvöld hundsuðu viðvaranirnar, sem að lokum varð til þess að 1200 mannslíf glötuðust Ísraelsmegin.
Vegna þess að sannleikanum verður hver sárreiðastur, var brugðist við með ómældum ofsa sem líklega mun ljúka með því að Gasa byggðin arabíska, verði ekki til að hildarleiknum loknum.
Var það kannski það sem lagt var upp með, að fá tækifæri til að eyða byggðinni á Gasa til að rýma til fyrir byggð gyðinga á svæðinu?
Við vitum þetta ekki og erum að draga ályktanir byggðar á líkum, raunverulegum líkum þúsunda fólks, sem drepið hefur verið kerfisbundið líkt og um útrýmingarherferð sé að ræða.

Engu er hlíft, ekki körlum, konum né börnum, allt er drepið sem hægt er að drepa og ofsinn er slíkur að það er í raun furðulegt hve mannfallið er lítið, í samanburði við sprengjuregnið og hve víðtækar afleiðingar það hefur.
Vel getur svo sem verið að uppgefnar tölur séu ekki réttar og að Hamas gefi ekki upp hið raunverulega mannfall í von um að kjarkur arabísku þjóðarinnar hverfi þá síður, en það breytir ekki því að manndrápin eru ógurleg og eyðilegging byggðarinnar ekki síður.
Gera má ráð fyrir að þegar þessu líkur, að þá muni gyðingaríkið byggja upp á ný á svæðinu og það er svo sem ekkert nýtt að land sé tekið með ofbeldi, þar sem fólk hefur verið hrakið af landi sínu og að síðan sé allt byggt upp að nýju.
Þannig hefur þetta gengið til árum saman og svo grátlegt sem það er, þá hefur ekkert verið gert til að hindra þessa aðferð til landtöku sem réttara væri að kalla landrán.

Stuðningurinn til þessa framferðis kemur ómældur frá forusturíkinu í vestri, fjármagn hergögn og vafalaust sitthvað fleira sem til þarf s.s. til uppbyggingar að landráni loknu.
Ætli það verði ekki það sem gerast muni í framhalda af því sem við horfum á núna, að allt byggist upp að nýju líkt og gerst hefur svo lengi menn menn muna.
Mannskepnan er dugleg við það og við höfum séð það gerast aftur og aftur í sögunni, að heilu þjóðfélögin eru lögð i rúst, en síðan er byggt upp að nýju af ótrúlegri þrautseigju.
Á sínum tíma var tekin ákvörðun um að reisa upp nýtt ríki gyðinga á þeim stað sem það hafði verið áður og það var gert, en svo virðist sem gleymst hafi að taka það með í dæmið, að á svæðinu var fyrir byggð, sem verið hafði um aldir og í þúsundir ára ef út í það er farið.
Að bæta fyrir glæp með öðrum glæp hefur aldrei þótt sérstaklega góð aðferð til réttlætis né til að jafna sig á hneykslun og samviskubiti.
Nýir landnemar gætu og ættu að koma betur fram við fólkið sem þeir eru að taka landið af og vitanlega væri best að fara ekki þá leið að beita valdi og ofríki við landtökuna, eða réttara sagt landránið.
Það er samt leiðin sem valið var að fara og því er sem er, að hörmungunum líkur seint, ef þá nokkurn tíma.

Færðu inn athugasemd