Óflokkað

  • Samkvæmt því sem sagt er frá í Vísi hafa Sjálfstæðismenn komist að því að ekki sé nein ástæða til að endurskoða stefnu(?) Sjálfstæðisflokksins. ,,Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að halla sér frekar til hægri eða vinstri til að bregðast við auknu fylgistapi að sögn formanns flokksins sem kynnti nýja ásýnd á sérstökum fundi í dag. Engar breytingar…

  • Ritari þessara pistla hefur um nokkurn tíma velt því fyrir sér hvers vegna umræða og samskipti manna og þjóða á milli sé sú sem hún er, a.m.k. á seinni tímum. Af myndunum hér að ofan sjáum við að það er síður en svo að ekki sé hægt að mynda vináttu milli ólíkra tegunda, en þegar…

  • Við gátum horft á viðræðuþátt á Rúv í gærkvöldi og óhætt er að segja að þátturinn var fyrir margra hluta sakir áhugaverður. Mættir voru fulltrúar ríkisstjórnarinnar sem nú situr og einnig fulltrúar tveggja flokka stjórnarandstöðunnar, þ.e. formaður Sjálfstæðisflokksins og væntanlegur formaður Framsóknarflokksins, þ.e.a.s. ef allt fer svo sem viðkomandi vonar. Þátturinn var fyrir margra hluta…

  • Á rússneska vefmiðlinum Russya Today er sagt frá því að hugsanlegt sé að fundur forseta Bandaríkjanna og Rússlands verði haldinn í Búdapest. Meistari Trump kemur mikið við sögu þessa dagana, hvort heldur hann er að rigga upp húsi á lóð hins Hvíta húss eða ,,stilla til friðar“ milli Ísraels og Hamaz, en að hann geti…

  • Fundurinn sem fyrirhugað var að halda, verður ekki haldinn vegna þess að Trump hefur ekki tíma til að dandalast þvers og kruss um hnöttinn til að ræða frið milli manna og þjóða, ef lítill sem enginn vilji er fyrir friði. Það vefst ekki fyrir teiknara Morgunblaðsins að fanga stöðuna eins og hann sér hana og…

  • Við sjáum mynd af því sem kallað er Gaza og í fyrirsögn er sagt, að flóttamenn snúi aftur heim til Gaza, en að hverju er að hverfa? Myndin er frá AFP en við sjáum hana í Morgunblaðinu og veltum því fyrir okkur hvað sé heim og að hverju sé heim að hverfa. Það var ekki…

  • Rannsókn leiðir í ljós að ávinningurinn fyrir loftslagsmálin þegar notaður er ,,tengiltvinn“ bíll er enginn að því er kemur fram í umfjöllun The Guardian. ,,Greining á 800.000 evrópskum bílum leiddi í ljós að raunveruleg mengun frá tengiltvinnbílum var næstum fimm sinnum meiri en prófanir á rannsóknarstofu sýndu“ segir þar, sem eru ekki góðar fréttir fyrir…

  • Kúnstug frásögn er á visir.is af ferðalagi rússnesks kafbáts sem Svíar fylgjast með í Eystrasalti. Myndin er fengin úr ,,frétt“ Vísis. Báturinn er trúlega á leið til heimahafnar og sé eitthvað að marka frásögnina er einhver bilun í vélbúnaði bátsins. Það vill svo til að rússneskar hafnir finnast í Eystrasalti og sé rétt að bilun…

  • Álftir hafa allt frá því að hann var gutti að sniglast niður á Tjörn, heillað ritara þessara pistla og það vantar ekki fegurðina á myndunum sem settar eru saman úr myndum sem birtust í Morgunblaðinu fyrir nokkru. Við getum notið þess að virða þær fyrir okkur smá stund og snúið okkur síðan að alvörunni, sem…