Fegurð og minni fegurð

Álftir hafa allt frá því að hann var gutti að sniglast niður á Tjörn, heillað ritara þessara pistla og það vantar ekki fegurðina á myndunum sem settar eru saman úr myndum sem birtust í Morgunblaðinu fyrir nokkru.

Við getum notið þess að virða þær fyrir okkur smá stund og snúið okkur síðan að alvörunni, sem birtist okkur Íslendingum í fegurð landsins og nytjanna sem hafa má af því.

En áður en lengra er haldið virðum við fyrir okkur samsetta mynd af væntanlegri brú sem verið er að byggja yfir Ölfusá.

Þar næst skoðum við mynd sem Morgunblaðið birti af Vatnsfellsvirkjun sem ekki hefur verið í rekstri að undanförnu, en eins og sjá má stendur það til bóta.

Þá er komið að myndasögu með Ferdinand vini okkar sem er fyrirhyggjusamur og djúpt hugsandi í þessu tilfelli, þótt hann sé það ekki alltaf!

Ljúkum síðan yfirferðinni með myndum af ,,föllnum“ íslenskum stjórnmálamönnum.

Og ætli það fari nokkuð illa á því, að hægra megin við þá sé vindgapi sem vonast er til að nýta megi til að fanga orku vindsins, þegar hann blæs og þegar það gerist af réttri átt.

Það skal tekið fram að vindfangarinn er tilraun sem gæti heppnast en það sama verður víst ekki sagt um pólitíkusana sem hlupu undan vindinum, fönguðu hann aldrei, og sitja nú eftir með sárt enni.

Þeir reyndu og gerðu sitt besta en vinir þeirra, skoðanabræður og systur úr stjórnmálunum sem við tóku, eru líka að gera sitt besta og því er það, að þau hafa allt á hornum sér og virðast ekki geta neitt annað.

Færðu inn athugasemd