Óflokkað

  • Hér er samkomulagið ágætt þó sitt hvorrar tegundar séu. Getum við lært eitthvað af því?

  • Það eru margir að vinna góð verk, sem eru hagkvæm fyrir bæði land og þjóð og í Hveragerði, er svo dæmi sé tekið, fyrirtæki sem hefur unnið að því að þróa aðferðir til að geta endurunnið plast sem notað er til að pakka inn heyi og gera plastið nothæft að nýju. Rúlluplast er flutt inn…

  • Nokkur grös verða á vegi okkar þennan daginn svo sem sjá má. Við sjáum að til stendur að bregðast við tölvuárásum sem fóru af stað eftir ,,leiðtogafundinn“ merkilega sem haldinn var á vordögum. Rætt er við einn af þeim sem er í viðbragðsteyminu og eftir honum haft: ,,„Þegar leiðtoga­fund­ur­inn var hald­inn þá voru það IP-töl­ur…

  • Svo er að sjá sem frumvarp um sameiningar afurðastöðva í landbúnaði hafi farið í gegnum Alþingi vegna þess að sumir þingmenn voru ekki nógu vel á verðið fyrir því sem var að gerast.  Þingmaður Samfylkingarinnar gengst við því að honum hafi orðið á, hann hafi ekki verið nógu vel á verði og orðið á þau mistök að…

  • Það er sem bylting hafi orðið hjá Bændasamtökum Íslands, en hvort hægt sé að tala um hallarbyltingu í því sambandi er ekki víst, að minnsta kosti er ekki svo í bókstaflegum skilningi þess orðs. Bændahöllin er ekki lengur til sem slík, hefur verið tekin undir skólahúsnæði og því er ekki hægt að gera byltingu af…

  • Það er ekki svo að Búnaðarfélag Íslands fari með málefni mennigarinnar í landinu, né utanríkis og iðnaðar o.s.frv. Fréttir úr Morgunblaðinu: Nei það er ekki svo, því eins og við sjáum við lestur fréttarinnar, þá er um að ræða fiskveiðar í á, sem stendur til að virkja og búið er að virkja, en vatnsföll eru…

  • Umræðan sem tekin var um söluna á TM, gleymist seint þeim sem horfðu og hlustuðu á Kastljós Sjónvarpsins þann 19/4 sl. Þær sem tókust á, voru Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og fjármálaráðherra ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur og skemmst er frá því að segja að fjármálaráðherrann hafði ekki erindi sem erfiði í þeim orðaskiptum.  Við vitum, eftir…

  • Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins bendir á í aðsendri grein í Morgunblaðinu að þörf á að endurskoða hugmyndir um byggð á höfuðborgarsvæðinu og að betra geti verið að byggja frekar upp á Geldinganesi, þar sem um sé að ræða tveggja ferkílómetra byggingarland. Hvað sem er og verður, þá má vera ljóst að það þarf að skoða málið með…

  • Tveir vinir sem báðir voru í fríi, fóru til Reykjavíkur til að líta við í Sjómannaskólanum á Skrúfudegi, degi sem haldinn er árlega til kynningar á skólastarfinu. Á ýmsu gengur og framtíð skólans er í óvissu vegna löngunar ráðamanna þjóðarinnar til að úthýsa menntun skipsstjórnarmanna, vélstjóra og vélfræðinga úr skólahúsnæðinu. Húsnæði sem fátæk þjóð byggði…

  • Bóndi nokkur í Norðurárdal stendur frammi fyrir sérkennilegu máli og sé málið skoðað, þ.e. fréttin lesin, kemur skýringin í ljós. Bóndinn á tún og túnið heitir nafni sem endar á hólmi og þar með finna hinir opinberu það út, að um sé að ræða eyju og hana skuli gera upptæka og af þessu ráðum við…