Óflokkað

  • Þar er stríðstól gert klárt til illvirkja og til hægri sjáum við mögulegar afleiðingar af beitingu þess. (Þær myndir eru fengnar af CNN.COM) Stríð er enn í Úkraínu og engu breytir, þó íslenskur ráðherra hafi beitt viti sínu svo sem hann gat og rekið heim rússneska sendiherrann. Fréttaveitan CNN.COM er með frásögn af stöðunni í…

  • Það sem við sjáum hér er undur fallegt og vonandi er svo líka um það sem sagt er frá þar fyrir neðan. Að stuðla að því, að við getum verið og fylgst með í innleiðingu nýrrar tækni er nauðsynlegt og gott framtak. Í Morgunblaðinu, er frásögn sem lætur ekki mikið yfir sér en þar segir…

  • Það er hart í ári hjá þessum sumargestum okkar en við vonum allra vegna, að það fari að hlýna í veðri. Það hefur verið kalt á þessu vori fram til þessa og þess sér m.a. merki á fuglalífinu. Farfuglar halda sig við mannabústaði í von um að finna eitthvað ætilegt og sumir víkja einhverju að…

  • Við horfum á Tunglið, fylgihnöttinn sem Jörðin krækti sér í með einhverjum hætti fyrir óralaungu síðan, svo löngu að við getum ekki hugsað svo langt aftur en getum samt reynt. Í grein sem birtist okkur á CNN eru ýmsar vangaveltur um hvernig bakhlið Tunglsins geti litið út og þar er sagt frá því að til…

  • 9/5/2024 Myndin sem er hér að neðan, birtist í Morgunblaðinu fyrir nokkru og við sjáum að rjúpurnar eru að skipta úr vetrarbúningi yfir í sumarbúning. Varðandi stöðu orkumálanna er allt við það sama, enda ekki hægt að hrófla upp virkjunum á einni nóttu og því er það, að farið er að bera á orkuskorti: Vegir…

  • Dýralíf og mannlíf – sérstaklega barna, er áhugavert. Á vef Bændablaðsins er sagt frá því að söfnun hafi farið fram til stuðnings Einstökum börnum og þar er þessi mynd af börnum sem eru að sýna stóðhesta. Þar segir frá því að ,,Söfnunin fer að mestu leyti fram á viðburðinum sjálfum þegar boðnir eru upp folatollar…

  • Að blanda saman því sem er nánast það fallegasta af öllu fallegu er vonandi góð byrjun á pistli! Síðan kemur hitt, sem er allavega og þar er fyrst að segja frá því, að Vestfirðingar eru illa staddir í orkumálunum og í þeim efnum hefur verið vanrækt að vinna að því, að sækja orku þangað sem…

  • 8/5/2024 Það er lítið um notalegheit í baráttunni til embættis forseta lýðveldisins Íslands. Boðið var upp á framboðsþátt í Sjónvarpinu þar sem frambjóðendur voru fengnir til að segja frá því, hvað það væri sem þeir stæðu fyrir og gekk það misjafnlega svo ekki sé meira sagt. Embættið virðist vera spennandi og góður kostur að margra…

  • Frásögn Morgunblaðsins: Við sjáum hvað ríkisstjórnin er ,,ófær um“, að mati stjórnarandstöðunnar og reyndar er það álit fólksins á götunni líka og við þurfum ekki Sigmund Davíð til að segja okkur það. Annað dæmi um óráðssíuna, fara á til Aserbaísjan og það er eins og okkur grunaði, land sem er talsvert langt í burtu, er…

  • ,,Eftir japl jaml og fuður var hann grafinn út og suður“ var eitt sinn sagt og ætli það verði ekki niðurstaðan núna. Þingmaður Framsóknarflokksins er til viðtals í Morgunblaðinu vegna japls um hvernig standa skuli að fiskeldi í sjó.  Fiskar lifa í sjó og vötnum, bæði stöðuvötnum og rennandi og því fengu menn þá hugmynd…