Óflokkað
-
Minnihlutinn sem reyndi að taka sér meirihlutavald með málæði situr eftir sár og svekktur og skrifar aðsendar greinar í Morgunblaðið – ,,blað allra landsmanna“? Og Gunnar teiknar ,,grátkórinn“ á mynd sem birtist í Heimildinni, þar sem hann heldur á textabókinni, sem gera má ráð fyrir að ekki þurfi að horfa á, eftir að sami söngurinn…
-
Í Heimildinni er löng grein um eignatengsl í íslenskum atvinnuvegum og eins og fram kemur í yfirskrift hennar, þá er athyglinni fyrst og fremst beint að eignatengslum í íslensku atvinnulífi þar sem útgerðirnar koma við sögu og eins og við flest vitum, þá eru það útgerðirnar sem nýta sér sjávarauðlindina. Hér verður ekki kafað djúpt…
-
,,„Það var gerð sú krafa undir lokin á samningum af hálfu minnihlutans að það væri ekki hægt að afgreiða nein önnur mál fyrir þinglok fyrr en það yrði samið um veiðigjaldið á forsendum sem við gátum ekki gengið að,“ segir Kristrún.“ Textinn hér fyrir ofan er tekinn úr umfjöllun Ríkisútvarpsins og myndin er þaðan líka.…
-
Í Morgunblaðinu birtist þann 4. júlí aðsend grein eftir Ásgeir G. Daníelsson þar sem svarað er ýmsum spurningum um auðlindarentu, kvótaverð og fleira sem viðkemur sjávarútvegsmálum. Höfundur greinarinnar er fv. sérfræðingur í sjávarútvegsmálum hjá Þjóðhagsstofnun eftir því sem fram kemur í lok greinarinnar og hann spyr margra áhugaverðra spurninga. Ritari, sem afar lítið veit um…
-
Í langri grein í Russya Today er sagt frá því að frelsun Lughansk sé lokið, eða eins og þar segir: ,,Þann 30. júní 2025 luku rússneskar hersveitir endanlegri frelsun Alþýðulýðveldisins Lugansk. Tilkynningin þess efnis hafi verið send frá yfirmanni svæðisins, Leonid Pasechnik.“ Í greininnni segir ennfremur ,,Ellefu árum eftir að Leonid lýsti yfir sjálfstæði og…
-
Við skoðum umfjöllun CNN.COM og sjáum að hægt er að lesa ýmislegt út úr myndum sem teknar hafa verið að undanförnu af ýmsum evrópskum forystumönnum. Klappað er á bök, breiddur út faðmur, gónt er til himins og svo er að sjá sem það séu þeir Merz og Tusk sem helst reyni að halda uppi alvarlegum…
-
Forsætisráðherra mætti í viðtal í þættinum Kastljós í sjónvarpi Ríkisútvarpsins og lýsti afstöðu sinni til málþófsins, sem stjórnarandstaðan hefur haldið uppi í umræðum á Alþingi síðustu vikur. Mynd Halldórs er fengin af visir.is Gera má ráð fyrir að öll helstu sjónarmið séu löngu komin fram í veiðigjaldamálinu sem verið hefur til umræðu. Svo er að…
-
Newsweek greinir frá því að tekist hafi að koma á vopnahléi, í átökunum milli Íran og Ísraels. Við getum vonandi leyft okkur að vona að um sé að ræða vopnahlé sem heldur en í niðurlagi umfjöllunar Newsweek er eftirfarandi fyrirvari settur: Þar sem engin opinber staðfesting hefur komið fram um samkomulagið frá Íran eða Ísrael…
-
Í Russya Today rakst ritari á ítarlega umfjöllun um stöðu heimsmála eftir árás Bandaríkjanna á Íran. Þar er fjallað um málin út frá rússneskum sjónarhóli en eins og við flest vitum þá er Rússland í stríðsátökum við Úkraínu ,,vegna árása Úkraínu á Donbas“. Margt áhugavert kemur fram í þessari umfjöllun, sem er frá rússneskum sjónarhóli…
