Óflokkað
-
Sumir alþingismenn hafa fundið hjá sér þörf til að tala mikið en segja lítið, undanfarnar vikur og eins og flestir munu vita, er ástæðan fyrir talþörfinni sú, að til stendur að hækka gjöldin sem útgerðarfyrirtæki greiða fyrir afnotin af auðlindinni. Um þetta hefur verið fjallað í miðlum að undanförnu og sýnist sitt hverjum en flestir…
-
Vont er það og verra verður það, er viðkvæðið þessa dagana og kveðskapurinn er sannarlega ekki fallegur. Sakleysingjarnir eru í holum sínum á meðan vondir menn brugga vélráð sem enginn sér fyrir hver verði og ekki einu sinni teiknarinn góði. Tveir taflmenn liggja fallnir á borðinu, klukkan er við það að falla á þá sem…
-
Við fylgjumst með í fréttum af stöðugum sprengjuárásum milli landa sem ekki liggja saman og það hlýtur að vera sérkennilegt fyrir löndin sem á milli þeirra eru, að fylgjast með skotflaugum fljúga yfir án þess að geta nokkuð að gert. Lofthelgi er eitt af þeim fyrirbrigðum sem komið hefur verið upp og venjan er, að…
-
Og við erum sífellt að finna upp á einhverju nýju í þeim tilgangi.
-
Að leysa deilur milli manna, hópa og/eða þjóða með ofbeldi, er slæmur kostur sem er samt ríkjandi við afgreiðslu deilumála t.d. milli einstaklinga, hópa, þjóða og þjóðabandalaga. Geta Rússland og Þýskaland verið vinaþjóðir? Úkraína og Rússland? Frakkland og Rússland? Í sögulegu tilliti er hægt að halda upptalningu af þessu tagi lengi áfram því mannkynssagan geymir…
-
Þannig gengur þetta að því er virðist út í hið óendanlega og engu skiptir þó samninganefndir ríkjanna hittist í Tyrklandi og þykist vera að semja um frið milli landanna. Kannski eru þær að starfa í góðri trú en svo mikið er víst að lítið kemur út úr því sem þær gera, annað er eftir á…
-
Haldinn var fundur varðandi friðarsamninga milli Rússlands og Úkraínu í Tyrklandi og áhugavert er að bera saman rússneskar og bandarískar fréttir af viðræðunum. Í Russya Today er sagt frá skilyrðunum sem Rússar setja fyrir friði milli landanna, skilyrði sem í mörgu virðast eðlileg sé horft á málin frá rússneskum sjónarhóli. Kondu að semja góði, því…
-
Nýnasismi er að ná sér að flug í vestur- Evrópu að sögn RT.COM og Macron virðist langa til að feta í fótspor Napóleons og þýskir ráðamenn eru ekki alveg frábitnir gömlum draumum. Moskva var dálítið öðruvísi þegar Naflajón var á ferðinni með sinn söfnuð en sá lufsaðist að lokum heim til sín og endað ferilinn…
