Þeir hittust í Kína.

Fátt bendir til að árangur hafi orðið af fundinum sem Xi bauð þeim Putin og Trump til á dögunum.

Zelensky fékk ekki að vera með og vel getur verið að það sé ástæðan fyrir að Úkraínar berjast sem aldrei fyrr og sérstaklega þykir þeim gaman að ráðast á óvopnuð flutningaskip á alþjóðlegum siglingaleiðum og ekki spillir fyrir ef þau eru rússnesk.

Í framhaldi af þessu má reikna með að Rússar finni hjá sér þörf að svara til baka og þannig koll af kolli og að ekki sjái fyrir endann á þeim hörmungum sem við öfum verið að horfa upp á.

Hjá okkur eru vandamálin dálítið öðruvísi s.s. sjá má og þó ekki sé skortur á deilumálum í íslenskum nútíma, þá finna menn hjá sér þörf til að stökkva aftur í aldir til að finna sér eitthvað til að rífast um.

Það er vafalaust hægt að finna sér eitthvað verra til að deila um en aldagömul rit svo kannski er þetta betra en ekkert.

Það er þó alla vega ekki verið að drepa og særa fólk að ástæðulausu og seint hefði sá sem þetta ritar, getað látið sér detta það í hug að lífshættulegt væri að stunda siglingar á flutningaskipum í Austursjónum.

Og líklega geta menn komið sér saman um að Sæmundur, sá sem um er rætt, sé ,,dáinn“!

One response to “Þeir hittust í Kína.”

  1. […] Nóv 23, 2026 Óflokkað Þeir hittust í Kína. […]

    Líkar við

Færðu inn athugasemd