Kosningarnar sem haldnar voru til að skera úr um hvort Ísland myndi óska eftir aðild að ESB hafa vakið athygli annarra þjóða.

Sá sem ritar þessa síðu hefur séð umfjöllun í nokkrum erlendum miðlum, s.s. The Guardian, CNN.COM og nú síðast í Russya Today og síðan aftur því sem fyrst var talið.
Það síðastnefnda er með tvær umfjallanir og vel getur verið að svo sé um fleiri miðla án þess að sá sem þetta ritar hafi tekið eftir því.
Greinilegt er að kosningarnar hafa vakið athygli út fyrir landsteinana og út fyrir ESB- svæðið líka, auk þess sem fjallað er heilmikið um niðurstöðuna í íslenskum miðlum eins og eðlilegt er.
Morgunblaðið íslenska er eins og við er að búast ánægt með niðurstöðuna og fjallar talsvert um hvernig kosningin fór og leggur síðan eitt og annað út frá því sem kom út úr kosningunni kom.
Var það neikvætt að þjóðin sagði nei er spurt og kona nokkur sagði í eyru þess sem þetta ritar eftir að hafa hlustaði á formann Sjálfstæðisflokksins í umræðum stjórnmálamanna í ríkisreknu sjónvarpsstöðinni ,,Rúv“: ,,Mikið er hún neikvæð þessi kona“.
Það er neikvætt að hafna ESB-inu, því til þess þurfti að setja x við ,,nei“ en að forystukona aðal nei- flokksins sé óþægilega neikvæð eftir að hafa ná sínu fram í kosningunum segir okkur eitthvað meira.
Það var nefnilega kosið til þings eftir slímusetu og pólitísk skrípalæti af ýmsu tagi og niðurstaðan varð afhroð þáverandi stjórnarflokka.
Við tóku ferskir vindar sem hinir lúnu flokkar virðast eiga erfitt með að sætta sig við, flokkar sem vildu fá að sitja áfram við völd en til einskis.
Við munum sem viljum muna hvernig komið var fyrir Katrínar, Bjarna og Sigurðar- stjórninni sem gafst upp um hávetur.
Ríkis- ,,stjórn“ sem var löngu búin með erindið og orðin innantóm og lítils virði; hafði fátt eitt fram að færa, nema að flengjast um heiminn og dinglast í kringum ófriðaröflin sem eru við það að hrinda heimsfriðnum fram af brúninni og ofan í ófriðargjána, af öflum sem flestir vita hver eru.
Heimsbyggðin hangir á blábrúninni og þó ekki væri nema vegna þess, þá ættu menn að vanda sig.
Íslenska þjóðin hafnaði kúriríi með þeim sem kynda eldana undir kötlunum, sem eru við það að springa undan þrýstingnum og það er vel.
Og nú vonum við að ríkisstjórnin sem nú situr að völdum, vandi sig í vinnubrögðum, hugsi um hag íslenskrar þjóðar og vandi sig við val á ,,vinum“.

Færðu inn athugasemd