Það er þungbúið loft, skýin hanga yfir og Jón og Gunna vilja helst ekki kíkja út um gluggann og alls ekki fara út!

Við búum á eyju sem er úti í miðju Atlantshafi og sem er austan við Grænland. Búum þar og viljum hvergi annarstaðar vera… en það eru ekki allir á þeirri skoðun!
Nú um stundir er sumum eitt helsta kappsmálið að Ísland gangi inn í það sem var efnahagsbandalag en er núna á hraðri þróun yfir í að verða hernaðarbandalag.
Skeggið og hakan eru skyld og þeir sem eitt sinn voru vinir geta orðið það aftur og gengur það ágætlega þegar óvinurinn er sá sami og þeir og fleiri hafa margreynt að koma fyrir kattarnef.
Við förum ekki lengra aftur en til fyrirbæranna sem vildu sölsa undir sig Rússland á dögum Katrínar sem kölluð var ,,hin mikla” og átti sannarlega þann ,,titil” skilinn.
Þjóðverja langaði feikna mikið til að leggja undir sig víðátturnar í austri og nutu til þess aðstoðar Úkraína en Stalín hinn georgíski var harður nagli og sama var um sovéska herinn og svo fór að óværan var rekin til baka, til síns heima með lafandi skott og lítið herlið m.v. það sem lagt var upp með.
Rússneski björninn er bæði þolinmóður og seigur og því ættu menn að hugsa sig um áður en þeir leggja upp í endurtekinn leiðangur.

Færðu inn athugasemd