Óflokkað

  • Hann brosir framan í heiminn þótt röndóttur sé og lætur sér í léttu rúmi liggja hvernig forsetakosningar á Íslandi fóru fram og er alveg sama um hve ,,meðmælendurnir“ eru margir. Bjarna er hins vegar ekki sama sem von er, því hann er forsætisráðherra og maður og að tilheyra þeirri tegund lífríkisins fylgir vesen, áhyggjur og…

  • Þessi tillti sér á stein og tvisvar verður sá feginn sem það gerir eins og við vitum. Hvort hann fylgdist með talningu atkvæða í forsetakosningunum á Íslandi, vitum við ekki. Af þeim er það frá að segja, að kosningarnar fóru vel og ein þeirra kvenna sem dreymt hafði um bessastaðasetu sigraði með nokkrum yfirburðum. Þrjár…

  • Fyrir skömmu var á þessum vettvangi fjallað um málefni Sjómannaskólans og þeirra menntastofnana sem í honum eru, m.t.t. þess, að verið er að úthýsa menntun sjómannastéttarinnar úr húsnæðinu og höfuðborginni. Þegar það var gert var m.a. stuðst við greinina sem er hér að ofan en nú er komin fram önnur grein, sem reyndar er frétt,…

  • Það styttist í að kýrnar fari úr fjósi þ,e,a,s, þær sem ekki eru hafðar í nútímafjósum þar sem lúxusinn í kýrlífinu er slíkur að engin þörf er á að sleppa þeim út að vori; aðstaðan er öll hin besta og kúnum líður vel í notalegheitunum.  Hrossagaukurinn er ekki húsdýr og glímir því við óblíða náttúru…

  • Skipstjórnar og vélfræðimenntun er á hrakhólum og svo sem sjá má, hrakar menntun skipstjórnarmanna af þeim ástæðum. Sé það svo, má gera ráð fyrir að það sama sé upp á teningnum hvað varðar menntun vélstjóra, því ekki er síður að þeirri menntun sótt, af ráðamönnum þjóðarinnar. Að svo sé komið vegna húsnæðisskorts fyrir starfsemi dómstóla,…

  • Samfylkingin mælist stærst og hvorki Vinstri græn né Sósíalistaflokkurinn myndu fá þingmann m.v. júnímælingu 2024 hjá Gallup. ,,Þingflokkur Vinstri grænna myndi þurrkast út, ef gengið væri til kosninga núna, samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn, með 30% fylgi.„ Við sjáum að Framsóknarflokkurinn nær ekki 10% og er orðinn minni en Miðflokkurinn og…

  • Við kusum okkur forseta, kusum ,,taktískt”, segja sérfræðingarnir og fengum konu í embættið.  Lesum um það á mbl.is að Bjarni hafi óskað nýkjörnum forseta til hamingju. Kannski finnst sumum það ekki vera frétt, svo sjálfsagt sem það er og í sama miðli lesum við líka að Selenskí hinn úkraínski, hafi líka óskað Höllu til hamingju.…

  • Viljum við að Landsvirkjun verði í eigu þjóðarinnar, eða að hún verði ,,seld“ einkaaðilum til að græða á? Munum að Landsvirkjun hefur greitt arðgreiðslur í ríkissjóð, sem nemur tugum milljarða og það stundum árlega og munum líka að það er ekki lítils virði að fyrirtæki af þessu tagi sé í þjóðareign. Árni Árnason vélstjóri, skrifar…

  • Hugsuðurinn Ríkið á banka og ríkið á sjóð og vegna þess að í þessum gersemum gæti leynst smá aur þarf að selja þær. Í Heimildinni er sagt frá þeim hugleiðingum og svo er að skilja sem aura vanti. Þannig er að Íbúðalánasjóður er með framsóknarbragði, sem veldur því að fáir vilja kaupa og það ekki…

  • Aðsend grein birtist í Bændablaðinu þann 16/5/2024 eftir forstjóra Samkeppnisstofnunar. Greinin er um breytinguna sem gerð var, ,,á búvörulögum sem heimila[r] kjötafurðastöðvum að hafa með sér samráð sem ólögmætt er í öðrum atvinnugreinum“. Ritari þessa pistils man vart eftir að hafa séð annan eins áfellisdóm eftirlitsstofnunar yfir vinnubrögðum Alþingis og vaktstöðu þeirra sem hagsmuna eiga…