Náttúran lætur ekki að sér hæða

Það styttist í að kýrnar fari úr fjósi þ,e,a,s, þær sem ekki eru hafðar í nútímafjósum þar sem lúxusinn í kýrlífinu er slíkur að engin þörf er á að sleppa þeim út að vori; aðstaðan er öll hin besta og kúnum líður vel í notalegheitunum. 

Hrossagaukurinn er ekki húsdýr og glímir því við óblíða náttúru landsins okkar og vill sjálfsagt ekki annað, þekkir ekki annað og vill því ekki annað! 

,,Rétttrúnaðarkirkja náttúruvina” hefur fundið það út að ekki sé gott að kýrnar séu haldnar í fjósum inni og því þurfi þær að galsast um og sprikla út um tún og haga, mannskepnum til skemmtunar en sjálfum sér til skaða. 

Það er snúið að gera svo öllum líki og tiltölulega auðvelt að finna út hvað öðrum hentar sitjandi í skrifborðsstóli án þess að hafa t.d. eins og í þessu tilfelli, sest að spjalli við kusurnar. 

Fróðleg grein birtist á dögunum um Landeyjahöfn þar sem ,,hafnar” aðstaðan var útskýrð og hvers vegna illa gangi að halda henni opinni. 

Skemmst er frá því að segja að niðurstaða greinarhöfundar er að ástæðan sé sú, að náttúran sé að glíma við að búa til eins konar langanes út úr suðurströndinni þar sem Heimaey verði endapunkturinn og að þar með verði smíðinni lokið. 

Það mun vera dálítið í það að verkinu ljúki, þannig að við verðum að sýna biðlund. 

Við ætlum að gera það og bíðum spennt eftir seinni hluta greinarinnar en það sem komið er fram er sannarlega áhugavert og skýrir erfiðleikana sem hafa verið við að halda höfninni opinni. 

Fjármálaráðherrann sem áður var samgönguráðherra, var reyndar kominn vel á veg fyrir nokkrum mánuðum við að finna lausn á málinu. 

Lausnin fólst í því, að fá bandarískan mann með snilligáfu til að koma til landsins með rafmagnaðan ofurbor til að bræða göng, til að opna veðurfría leið til Heimaeyjar. 

Ekkert hefur fréttst af þessu um nokkuð langan tíma en trúlega er verið að vinna í málinu en eins og flestir vita þarf það að gerast hljóðlega til að umhverfisvæningjar umhverfist ekki og friðlýsi bergið, fyrir nú utan, að vel getur verið að um snemmbúið aprílgabb hafi verið að ræða. 

Verið getur líka að koddalegan stafi af því að menn hafi áttað sig á, að um óra hafi verið að ræða og því sé best að bíða og hafa hægt um sig í þeirri von að málið líði hjá. 

Það verður hins vegar leiðigjarnt að bíða eftir náttúrusmíðinni sem hér var nefnd í upphafi og ekki flýtir það fyrir, að sífellt er verið að moka út úr Landeyjahöfn efninu sem til þarf í smíðina. 

Færðu inn athugasemd