Óflokkað
-
Nei, bara eldgos og þau eru sem fastir liðir eins og venjulega, á Reykjanesi. Þetta var í Morgunblaðinu um daginn og nú er gripið til sparnaðaraðgerða, enda séð fram á krepputíma að kosningum loknum: En þegar við vöknum þennan morguninn, er sagt frá því í fréttum, að eldgos sé hafið í enn eitt skiptið á…
-
Í Heimildinni er farið yfir hallarbyltinguna sem gerð var hjá Bændasamtökunum, þegar kosinn var nýr formaður og framkvæmdastjóri, sem ný forysta rak síðan úr starfi án sýnilegrar ástæðu. Við erum nokkur sem munum það sem var hjá Bændasamtökunum – áður Stéttarsambandi bænda – og síðan breytingarnar sem seinna urðu. Bændasamtökin áður voru áður fyrr fyrst…
-
Við höfum flest tekið eftir því, að ríkisstjórnin sem nú situr, er sem afgangurinn af því sem áður var. Í Morgunblaðinu þann 15/11/2024 má sjá hvernig staðan er en þar er greint frá störfum Alþingis á síðustu dögum þess fyrir kosningar. Það er verið að berjast við að afgreiða fjárlög og ýmislegt athyglisvert kemur í ljós. …
-
Í grein undir yfirskriftinni ,,Vindurinn – Ekki sjálfgefinn“ í Heimildinni eftir Ara Trausta Guðmundsson er fjallað um vindorkuver og vatnsaflsvirkjanir og hvernig þessi mismunandi orkuver vinni saman, eða réttara sagt vinni ekki saman. Ef rétt er skilið, telur höfundur greinarinnar, að vindorkuverin þurfi vatnsorkuverin til að brúa bilið þegar vindinn skorti og því þurfi það…
-
CNN.COM segir frá náttúrufyrirbæri í Síberíu, sem olli mönnum furðu en eins og svo oft fundust eðlilegar skýringar á því eftir að vísindamenn höfðu kannað fyrirbærið. Það sem gerðist var, að fyrir um áratug varð til gígur á rússneska heimskautasvæðinu, sem myndaði risastóra hvassa holu sem náði niður í kolsvart hyldýpi. Frá 2014 hafa meira en 20…
-
Það er barist í Evrópu og það er barist í Afríku og eflaust víðar, þó ekki sé eins mikið um það fjallað. Þegar yfir mann gengur, framferði þeirra sem málum ráða í veröldinni er gott að horfa á eitthvað fallegt og það sem sést hér ofan er að margra mat af því tagi. En að…
-
Það stendur til að halda kosningar innan skamms tíma og mikið er um að vera hjá stjórnmálamönnum þjóðarinnar. Hér sjáum við þá helstu á því sviði, íhöldin þrjú og síðan einbeittan formann Samfylkingarinnar á, milli þeirra Sigmundar og Bjarna. Svo virðist sem fylgi Sjálfstæðisflokksins sópist til Miðflokksins svokallaða en sé hann miðflokkur, hvað er þá…
-
Við munum þá tíma þegar fjölmiðlar voru í fjárhagslegu basli og þurftu að hafa allar klær úti til að geta haldið sér á floti. Nú er komin önnur tíð með blóm í haga og menn þurfa ekki að hafa eins mikið fyrir því að afla sér tekna til að geta t.d. borgað starfsfólki þó ekki…
-
Stjórnendur Reykjavíkurborgar stefna á að tekjuafgangur á næsta ári verði 1,7 milljarður. Það er nánast á pari við það sem ríkisstjórnin færði forseta Úkraínu að gjöf, eftir að hafa boðið honum á þing Norðurlandanna. Og það vantar a.m.k. milljarð í rekstur Landhelgisgæslunnar, milljarð sem ekki liggur á lausu. Ekki hefur ritari séð hve margir hundar…
-
Í Heimildinni er farið yfir það hvernig fylgið við stjórnmálaflokkana hefur hreyfst frá síðustu kosningum. Hvaðan kom það, hvert fór það og hvar er það, fylgið sem flokkarnir fengu síðast þá er kosið var til Alþingis. Það er líka farið yfir það hvernig fylgið við stjórnmálaflokkana hefur hreyfst frá síðustu kosningum. Hvaðan kom það, hvert…
