Óflokkað
-
Ríkisútvarpið segir frá því að sést hafi til fljúgandi furðuhluta enn einu sinni í Bandaríkjunum og hefur það trúlega eftir frétt sem var á AP fréttastofunni. Við Íslendingar látum okkur nægja einn slíkan en hann er í formi ,,utanríkisráðherra“, sem nú er að nýta sér möguleika til heimshornaflakks á kostnað þjóðar sinnar og fer sú…
-
Það er frekar þungt hljóð í töpurum vetrarkosninganna til alþingis, sem fram fóru fyrir fáum dögum. Fjármálaráðherrann fráfarandi vill ekki kannast við að ríkissjóður sé illa staddur og telur að „[…]þetta fólk sé bara ekki læst á neinar tölur, því þetta lá fyrir við afgreiðslu fjárlaga,“, eftir því sem haft er eftir honum í Vísi.…
-
Fréttastofunni CNN.COM er fátt óviðkomandi og í grein sem þar birtist er sagt frá fornleifafundi. Stór demantur, varalitur og erótískar myndir m.m. hafa verið að finnast á árinu sem er að líða. Mynd eftir Picasso, tónverk eftir Chopeng og það dularfyllsta er hér lengst til vinstri. Rétt er að taka fram að myndirnar sem hér…
-
Þær funda þétt konurnar þrjár sem eru að vinna í því að koma saman ríkisstjórn. Komið er í ljós að staða ríkissjóðs er ekki sérlega traust, svo ef til vill er kominn tími á, að hinar ,,hagsýnu húsmæður“ taki við taumunum. Myndin er klippt út úr mynd á mbl.is Það er fjallað um stjórnarmyndunina á…
-
Teiknarar blaðanna eru í essinu sínu þessa dagana; njóta þess að teikna, enda tilefnin næg. Karlinum sem er á teikningunni lengst til hægri líður ekki sérstaklega vel. Það er hins vegar þung alvara í grein sem lesa má í Heimildinni, þar sem segir frá því að vísa eigi ungri konu úr landi – ekki til…
-
Gengið og ekið var til kosninga fyrir fáum dögum og sumir fengu það sem þeir vildu en aðrir ekki. Ívar sem teiknar fyrir Morgunblaðið, sýnir okkur mann sem liggur á bekknum hjá sála sínum og er alveg hættur að botna í sjálfum sér, en á hinni myndinni er svo að sjá sem Bjarni sé búinn…
-
Á Vísi er fari yfir umræðuþátt sem var á dagskrá Stöðvar 2 í gær (28/11/2024). Þátturinn var langur og þátttakendur í umræðunum komu víða við en einna mesta athygli vakti, hjá þeim sem þetta ritar, umræða um húsnæðismál. Kristrún Frostadóttir vakti máls á húsnæðismálunum og svo var að heyra sem Bjarni væri ekki alveg með á…
-
Maskína gerði könnun fyrir Heimildina á því hvaða flokka fólk vildi sjá saman í ríkisstjórn og yfir niðurstöðuna er farið í grein, sem er undir yfirskriftinni ,,Flestir vilja Viðreisn og Samfylkingu í næstu ríkisstjórn”. Ríkisstjórnin sem ekki veit hvaða árstími er og líklega ekki heldur í hvaða landi hún starfaði, gafst upp á sam-,,starfinu“ eins…
-
Senn verður kosið til Alþingis og spennan eykst, en áður en við köfum dýpra, þá skulum við virða fyrir okkur þessa fallegu mynd sem birtist óvænt á skjánum hjá ritara og höfum í huga, að þessi fugl kafar aðeins til hálfs og það sama gildir um þann sem þetta ritar! Skoðanakannanir berast og stundum fleiri en…
-
Heimildin fer yfir niðurstöður skoðanakannana, þegar stutt er orðið í kosningar og niðurstöðurnar eru ólíkar því sem við eigum að venjast. Þar segir frá því meðal annars að: ,,Samfylkingu og Viðreisn vanti eitt þingsæti til viðbótar til að ná að mynda meirihluta í þinginu, miðað við nýja skoðanakönnun Maskínu.” Súluritið er fengið úr Heimildinni er…
