Óflokkað

  • Það er ekki djúpt í árinni tekið að segja sem svo, að Trump hafi ruggað bátnum frá því hann tók við embætti. Í Wall Streat Journal er fjallað aðeins um stöðu efnahagsmálanna í Bandaríkjunum í grein, þar sem lagt er út frá aðgerðum hins nýja forseta í þeim málum. Eins og við vitum flest, hafa…

  • Zelensky mun hafa ritað bréf til Trumps og á CNN er myndskeið þar sem Trump segir frá bréfinu. Þegar ljótleikinn er hafinn upp og orðbragðið milli ráðamanna heimsbyggðarinnar er ekki sem huggulegast, er gott að virða fyrir sér eitthvað fallegt, þó það komi innihaldi þessa pistils ekkert við. Hið ill- leysanlega Úkraínumál er eftir því…

  • Tveir fuglar stinga saman nefjum og eru að velta fyrir sér tilverunni og sá þriðji fylgist með. Mannlifið er þeim talsvert hugleikið og þeir sjá margskonar samsvörun milli manna og dýra. Heyrðu félagi, hefurðu fylgst með Morgunblaðinu frá því fyrir og eftir kosningarnar? Nei, kannski ekki nógu vel til þess að ég geti haft eitthvað…

  • Rússar hafa farið fram á að opnað verði að nýju fyrir beint flug milli Rússlands og Bandaríkjanna. Frá þessu er sagt á vef CNN og svo virðist sem að óskin sé sett fram í beinu framhaldi af sneipuför Zelensky á fund með forseta Bandaríkjanna. Hvort það er þannig verður ekki fullyrt af ritara en tímasetningin…

  • Þeir komu saman til spjalls og ráðagerða í Washington, Trump og Zelensky og af því er orðinn mikill hvellur, sem er til umræðu í ýmsum miðlum og þ.á.m. á BBC, fyrir nú utan það, að íslenskir ráðherrar hafa séð ástæðu til að eyða íslenskum milljörðum í hergögn. Umfjöllun BBC fylgir myndin hér að ofan og…

  • BBC segir frá niðurstöðu rannsókna á upphafi þess sem við könnumst við sem stríð Ísraels á Gaza. Ekki sá ritari að undirliggjandi ástæður þess mikla haturs sem ríkir milli Araba og Ísraels hefði verið skoðað í þessu samhengi en það má rekja langt aftur í sögulegu tilliti. Ísrael var ,,vakið upp“ eftir heimstyrjöldina síðari eftir…

  • CNN greinir frá því að við getum átt á heimsókn, en það dálítið langt þangað til. Teikning listamanns, sem fylgir umfjöllun fréttastofunnar, sýnir algengt smástirni. NASA leggur áherslu á að greina ógn af smástirnum sem gætu valdið skaða á Jörðinni og gerir það í þeim tilgangi að hægt verði að bregðast við þeim í tíma.…

  • Í þessari umfjöllun er sagt á einum stað og haft eftir Macron hinum franska ,,…að Rússland ógni tilveru Evrópu…„ Sem betur fer er notuð þátíð, þannig að við getum a.m.k. vonað að ógnin sé liðin hjá! Eftir því sem best er vitað er Rússland í Evrópu og reyndar nokkuð stór hluti hennar. Sagan segir okkur…

  • Fyrrverandi liðsmenn Breta frá Afganistan vilja komast á brott frá landi sínu og fá að setjast að í Bretlandi, væntanlega í þeirri von að þeir nái að lifa þar í friði fyrir Talibönum sem öllu ráða í því hrjáða landi. Málið mun vera, að málaliðarnir fyrrverandi gætu haft vitneskju um glæpi, sem ekki er æskilegt…