Þegar ritari er að lesa ferðabók Duffrins lávarðar um ferð til Íslands og norður Noregs, þar sem segir frá ævintýralegum löndum í norðri, þá fara að gerast atburðir í norðri! Atburðir sem opna siglingaleiðir og ekki nóg með það, því það birtast jafnvel nýjar eyjar sem með tímanum breytast síðan í skaga!
Í Russya Today er sagt frá þessu og áhugi vaknar til að fræðast meira.

Úrklippur úr RT.

Opnist siglingaleiðir í norðri milli Kyrrahafs og Atlantshafs breytist margt hvað varðar flutninga milli Evrópu og Asíu og jafnvel Ameríku líka.
Tilviljanir geta verið skrítnar en við lesum greinina og bíðum síðan spennt eftir framhaldinu og erum minnug þess, að atburðir af þessu tagi gerast ekki eins og hendi sé veifað og því sópum við óþolinmæðinni undir teppið en höldum í bjartsýnina!

Færðu inn athugasemd