Þrælahald fyrr og nú

The Guardian segir frá því hvernig þrælahald var stundað af hálfu Breta og við lesturinn kemur í ljós, að þeir þurfa að horfast í augu við sitthvað úr fortíðinni.

Myndirnar hér að ofan fylgja greininni í The Guardian og það skal tekið fram að þeim er ekki raðað upp hér með sama hætti og gert er þar.

Við vitum vel að þrælahald var stundað vítt um veröld á öldum áður og það sem verra er, að það finnast dæmi um það sama í tíð okkar sem nú erum á fótum.

Það er svo um þrælahald, að það er hægt að finna þvi önnur nöfn til að hylja það sem raunverulega er verið að gera og eins hitt, að það hefur verið stundað víða, allt og víða og þ.á.m. hér í landinu okkar góða.

Við vitum sumt og síðan er það sem við viljum ekki vita og sem dæmi má nefna, að þess finnast allt of mörg dæmi að svokallað kynlífsþrælahald sé viðhaft í nútímaþjóðfélögum; við lokum augum og víst er, að það er erfitt að tak á þessum hlutum, því mannskepnan er útsjónarsöm og hún er það ekki síst þegar eitthvað þarf að hylja.

Bretar virðast ætla að horfast í augu við fortíðina en hvort þeir gera það varðandi nútímann verður að koma í ljós og við skulum því varast að dæma þá sérstaklega, því litlar sem engar líkur eru á að þeir séu eitthvað öðruvísi en aðrar þjóðir í þessum efnum frekar en öðrum.

One response to “Þrælahald fyrr og nú”

  1. […] Sep 17, 2026 Óflokkað Þrælahald fyrr og nú […]

    Líkar við

Færðu inn athugasemd