Það var haldinn fundur í Istanbul, skip kom út úr þoku, byssa var gefin og ábyrgðin var mikil.


Þetta er voðalegt að sjá og ekki bætir úr að skipið mun vera rússneskt!

Tyrklandsforseti gaf öllum byssu eftir fundarsetuna og það er eflaust misjafnt hvernig farið verður með gjöfina!
Kristrún mun ætla að láta gera gripinn óvirkan en hvað verður eftir það, veit enginn.
Byssa er ekki byssa nema byssa sé, sagði einhver og því er það vel gert af íslenskum forsætisráðherra, að ,,hundsa“ byssuna og sjá til þess að hún verði engum að skaða.
Byssur eru drápstól og hvað hinum tyrkneska gengur til vitum við ekki með vissu, en afþökkum annað Tyrkjarán ef það skyldi nú standa til.
Það var ægilega gaman að eiga byssu þegar ritari var strákur á hlaupum um götur Reykjavíkur á árum áður og eitt sinn gerði hann tilraun til að drepa mann þegar hann var í eltingarleik við frænda sinn.
Til stóð að skjóta frændann en bráðlætið var of mikið og það gleymdist að kanna hver það væri sem sem handan hornsins var að koma.
Það kom hvellur og manninum brá og byssuguttinn forðaði sér í bráða hasti í hvarf svo hann yrði ekki tekinn fastur fyrir að ráðast á saklausan mann á göngu í Aðalstræti Reykjavíkur- óborgar, því engin var borgin þegar þetta var.
Tímarnir breytast og strákarnir með; breytast úr guttum yfir í fullorna menn og síðan gamla karla og ég vona að hinum skotna og þó óskotna manni sem var handan við hornið hafi ekki brugðið svo að hann hafi gengið hlægjandi á brott.
Guttarnir þorðu ekki annað en forða sér á góðan stað áður en hláturinn sprakk fram.
Kannski fór ritari út af strikinu en það verður að hafa það og upplýst er að forsætisráðherrann okkar ætlar að koma byssunni erdónsku í hendur góðra manna sem kunna að gera byssur óvirkar og það svo, að þær verða ekki einu sinni ,,knallettubyssur“ eftir breytinguna.
En hvað varð um skipið? Sigldi það bara sinn sjó? Var Putin um borð? Og kannski Trump líka?
Já það eru margar spurningarnar sem vakna en hvað er og hvað verður næst vitum við ekki.

Færðu inn athugasemd