BBC.COM fjallar um rafvæðingu bifreiða og fleiri tækja í Kína í ítarlegri grein og í ljós kemur að þeir standa öðrum þjóðum framar í þeim iðnaði.

,,Í dag er Kína ráðandi í framleiðslunni á öllum stigum rafhlöðubirgðakeðjunnar, fyrir utan námuvinnslu og vinnslu sumra hrárra steinefna, samkvæmt Alþjóðaorkumálastofnuninni. Þar eru næstum 85% af rafhlöðuframleiðslugetu á heimsvísu, samanborið við 5% í Norður-Ameríku og 7% í Evrópu, samkvæmt rannsókn ráðgjafafyrirtækisins Wood Mackenzie, sem BBC hefur séð.“, segir m.a. í grein BBC.
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með því hvernig kínverska- alþýðulýðveldið hefur risið upp frá því að byltingin var gerð.
Þeir lokuðu sig ekki af, heldur sóttu fram og sækja enn og vinna markvisst að því að byggja samfélagið upp úr þeirri öskustó sem það var í.
Það má fræðast um þetta víða og undirrituðum er t.d. minnisstæð bók eftir Magnús heitinn Kjartansson, ,,Bak við bambustjaldið“ minnir ritara að hún heiti, þar sem segir frá heimsókn hans og konu hans til landsins þegar skammt var liðið frá byltingunni.
Í þeirri frásögn kemur fram að hugur og seigla, ásamt einlægum vilja til að byggja upp og bæta frá því sem var, til þess sem koma skal, býr í þjóðinni og í raun eru frásögnin mögnuð lýsing á því hvað hægt er að gera, ef einlægur vilji til að sækja fram, fær að ráða.
Á þeim tíma var það Mao sem fór fyrir þjóðinni, en hann var ekki einn og entist ekki að eilífu, frekar en aðrir menn.
Þeir og þau sem við tóku virðast hafa haldið merkinu hátt og nú sjáum við ríki sem sækir fram og virðist ekki vera neitt nærri því að hætta þeirri sókn.
Og á þeim bæ fara menn ekki á taugum þó galinn forseti taki við völdum af öðrum gölnum, heldur halda sínu striki og sækja fram og gera það án þess að slá um sig með innantómum frösum, að hætti þess sem nú situr í svokölluðu ,,hvítu húsi“ vestanhafs.
Öll él styttir upp um síðir er sagt og við skulum vona að sólin komi líka upp í vestri, en hvenær það verður er ekki gott um að spá.

Færðu inn athugasemd