Það stendur hús á horni Bolholts og Skipholts sem er til sölu. Hús sem Sjálfstæðismenn byggðu á góðri lóð, sem seinna var notuð af þeim til að styðja við ,,þéttingu byggðar“ í Reykjavík.
Það er sjálf Valhöll sem er til sölu, sem hefði verið saga til næsta bæjar áður en þeir komust að þeirri niðurstöðu að rétt væri að minnka(?) við sig og færa eignaumsvif flokksins í annað horf.
Húsið er hið glæsilegasta, þó einhverjum kunni að þykja ,,línurnar“ dálítið kantaðar, en hafa verður í huga að æskilegt var talið, að umbúðirnar væru í stíl við innihaldið.

Við sjáum að innan dyra er allt hið huggulegasta og útsýni til umhverfisins er greinilega gott og ekki er vafi á, að húsið góða er upplagt fyrir ýmsa starfsemi; bílastæði eru næg, eða voru það að minnsta kosti, áður en að hafist var handa við fyrrnefnda þéttingu byggðar á lóðinni.
Við skulum vona að kaupendur finnist, svo flokkurinn geti komið sér fyrir annarstaðar, fyrst búið er að ákveða flutning.
Framsóknarmenn, Vinstrigræningjar auk Miðflokksins tækju sig eflaust vel út í þessum myndarlega bústað og hver veit nema að þeir gætu síðan gengið í eina sæng og sameinast um það verkefni að koma þjóðinni á vonarvöl.
Væri það ekki góður kostur?
Sjálfstæðisflokkurinn stóð fyrir því að reka rússneska sendiherrann úr landi og þar sem það hús stendur nú laust í vesturbæ Reykjavíkur, er alveg hugsanlegt að flokkurinn geti sest þar að, þ.e.a.s. ef um það semdist við ,,vinina“ í austri.
Andinn innan dyra yrði eflaust góður og í samræmi við hugmyndir flokksmanna!
Vel getur verið að þar sé enn alræðisandi, sem ætti ekki illa við, sé tekið mið af því sem sést hefur til flokksins undanfarin ár.
Þeir vilja fara með völdin í samfélaginu og jafnvel heiminum öllum og til þess að ná því fram, eru þeir eflaust til í að fórna miklu, svo sem sannaðist þegar þeir tóku því með ótrúlegri þolinmæði að vinstrigræningjar hindruðu hvalveiðar.
Það getur verið kvalræði að vera í pólitík og ekki síst þegar starfað er með pólitískum undan- villingum svo sem sannaðist í ríkisstjórninni sem sprakk þrátt fyrir Abú Dabí reisur og önnur kyndug uppátæki.
En að þessu sögðu skulum við vona að kastalinn við Bolholt seljist fljótt og vel, svo Sjálfstæðisflokkurinn geti komið sér fyrir á nýjum stað.
Kannski bjóða þeir Miðflokks- og Framsóknarfélögum sínum og jafnvel því sem eftir er af vinstrigræningjum í húsaskjól.
Framsóknarmenn þyrftu þá ekki að burðast með samviskubit(?) yfir húsakosti sínum lengur.
Og yrði þá ef ti vill hús við Snorrabraut til sölu og/eða yrði stekkur, hver veit?

Færðu inn athugasemd