Munu þeir hittast eða munu þeir ekki hittast?

Hugsanlega ef til vill og kannski, munu þeir Putin og Trump hittast til að ræða málin, samkvæmt því sem sagt er frá í ýmsum miðlum og þ.á.m. The Guardian.

Trump hefur verið að gaspra með það, að hann muni hitta Putin á næstunni til að ræða um styrjöldina sem er milli Rússlands og Úkraínu.

Hvort af því verður og hvort það verður til einhvers er engin leið að vita og muna má að eitt sinn hittust forsetar ríkjanna í Reykjavík og sömdu um niðurskurð skammdrægra árásareldflauga.

Blekið hafði vissulega þornað á þeim samningum þegar Bandaríkin riftu þeim og þar með voru þeir að engu orðnir.

Það er nefnilega þannig að það þarf tvo til, þegar tveir deila og sú regla er í fullu gildi nú sem áður.

En að þessu sögðu: Þar sem er gasprað, þar er von, eða ef til vill ekki og kannski!

Það þarf a.m.k. tvo til að semja þegar tveir deila og þar sem ekki hefur komið fram neitt, svo eftir verði tekið um samningsvilja Úkraína og enn minna en ekkert um hvort þeir muni virða samninga, ef af þeim yrði, þá getum við lítið meira get en að halda í vonina.

Að þessu sögðu er rétt að muna að ,,orð eru til alls fyrst“ og því er örlítil von um, að þessu hörmulega stríði geti farið að ljúka.

Það er reyndar eitt sem við vitum með vissu og það er ,,að öll él styttir upp um síðir“ og sagan segir okkur að svo sé einnig um styrjaldir.

Vonandi er það svo, að það nái yfir þær án undantekninga.

Færðu inn athugasemd