Ríkisstjórn í skugga trefils og forsetakosninga

Það er mikið um að vera og svo sem sjá má, eru málin ,,ekki í höfn“, það ,,þarf að ræða“ eitt og annað dálítið betur og myndin af ráðherranum er nokkuð ,,þung“, ef svo má segja.

Aðalmanneskjan í ríkisstjórninni er á förum, búin að fá nóg og stefnir á einhverskonar hvíldarinnlögn á Bessastöðum; sækist efir nýrri tilveru í ró, virðuleik og friði.

Vel getur verið að þeir draumar rætist, frambjóðendur eru nægir og ljóst má vera að ekki þarf mikið prósentufylgi til að komast á setrið.

Vinstrigrænir kjósa sína konu, gerum við ráð fyrir og atkvæðin á hina frambjóðendurna, 59 skv. nýjustu spám, munu dreifast.

Meira um myndina sérkennilegu.

Bjarni stikar og stendur í aðhnepptum jakka, djúpt hugsi yfir stöðu mála, eins og það mun heita, því allt verður það að heita eitthvað. Hann er að missa af lestinni, fær ekki að verða forseti og langar það kannski ekki. Hvað vitum við?

Við sjáum aðeins svipbrigði og viðbrögð, en ljóst má vera að ríkisstjórnarflækjan er að leysast upp, rakna upp eins og getur gerst með flíkur sem hafa rofnað af einhverjum ástæðum.

Hér eru ástæðurnar einhverjar en hvað gerðist og er að fara að gerast veit enginn nema það að skipsstýran er að yfirgefa brúna og ríkisstjórnarbyttan sem er farin að leka og orðin vélarvana, gæti farið að síga ef ekki verður rekið í götin.

Á hvað fjármálaráðherrann er að benda veit enginn og síst af öllu utanríkisráðherrann sem stendur hokinn og er að reyna að átta sig á því sem er að gerast. Ef til vill langar hann einfaldlega að vera í pólitísku skjóli hjá fjármálaráðherranum, sem reyndar er frú.

Ber er hver að baki nema sér bróður eigi og að baki Bjarna stendur maður hokinn og hallar aftur og er sem hann sé að sligast undan því sem á honum hvílir.

Mögulega bendir fingurinn á trefilinn sem hinn fráfarandi? forsætisráðherra og tilvonandi? forseti þjóðarinnar hefur vefið um sig.

Færðu inn athugasemd