Bessastaðaveikin, Havanaveikin og ríkisstjórnarundrið

Bessastaðaveikin sem teiknari Morgunblaðsins kallar svo, hefur grafið um sig að undanförnu.

Þessi magnaða mynd af ríkistjórninni birtist á Facebook síðu Helgu Völu Helgadóttur og óhætt er að segja að það sem sést á henni, eða öllu heldur það sem ekki sést, vekur bæði furðu og forvitni.

Á hvað er fjármálaráðherrann (fyrrverandi utanrikisráðherra) að benda?

Hún gæti vera að benda á dómsmálaráðherrann og karlarnir, Bjarni og jafnvel fleiri, virðast fylgjast áhugasamir með bendingunni og virðast vera, annað hvort yfir sig hrifnir, eða furðu lostnir.

Forsætisráðherrann hrópar eitthvað út í loftið en hvað það er, vitum við ekki.

Tveir framsóknarráðherrar brosa og ber er hver að baki nema sér bróður eigi og við sjáum að lengst til vinstri er maður sem virðist vera við það að detta aftur fyrir sig. Við vonum að svo hafi ekki farið fyrir honum, en hver er hann, hvað sér hann og hvað er hann að gera?

Það er legið undir feldi og hugsað og hugsað, trommað með fingrum og spennan er allt að því óbærileg…

…og undir fledinum leynist hópur af fólki sem er að hugsa sitt ráð, fleiri vilja komast að og flóttinn úr ríkisstjórnaróláninu er hafinn…

…undirbúinn af kappi og svipurinn á körlunum sem í gættinni standa segir sögu.

Það er sem spurt sé, hver á að klóra yfir … þegar þú ert farin?

_ _ _

En við snúum okkur að öðru, því loksins er fundin skýring á hinni ógurlegu pest sem þjakað hefur bandaríska vænisjúklinga á Kúbu.

Illur á sér ills von og vegna þess hve vont er að burðast með vonda samvisku, er fundin upp skýring á pestinni undarlegu sem þjakað hefur bandaríska diplomata á Kúpu.

Og auðvitað eru það hinir vondslegu Rússar sem að aðsókninni standa og Mogginn setur sem von er gæsalappir um nafnið á pestinni.

Á Kúbu ríkir mikil fátækt og eymd sem stafar að því að Kúbverjar hafa kosið að vera í sem mestri fjarlægð frá nágrönnunum sínum; þeim sem öllu vilja ráða í heiminum.

Sem eru þeir sem mergsugu Kúbu fyrir byltingu.

Það kostar fé að ríða röftum og því hefur það tekið illilega í, að berjast í því að reka sjálfstætt þjóðfélag í grennd við nágrannann gráðuga.

Af því súpa menn seyðið á Kúbu, í bresku fangelsi og víðar og víðar, en góðu fréttirnar eru þær að bandarískir ísraelsvinir hafa farið þess á leit við þá síðarnefndu að þeir vandi sig betur í manndrápum, sem nær öruggt er að þeir ísraelsku munu ekki taka hliðsjón af. Það gerir ekkert til, því orðin eru aðeins sögð til að þau séu sögð.

Eru sem sagt lína í leikriti.

Enginn veit hvers vegna Hitler kaus að endurfæðast sem ísraelskur forsætisráðherra og þaðan af síður veit nokkur hverju sá mun taka mark á í illsku sinni.

Vel getur líka verið að sá kauði komi þarna hvergi nærri og Netanyahu sé einfaldlega rangur maður á vitlausum stað á röngum tíma.

Færðu inn athugasemd