Jarðhræringarnar á Reykjanesi eru ofarlega á lista a.m.k. sumra erlendra fjölmiðla svo sem sjá má dæmi um hérna.
https://www.cnn.com/2023/11/11/europe/iceland-emergency-evacuates-threat-volcanic-eruption-intl-hnk
Frétt CNN.COM fylgir myndin sem er hér að neðan.

Og þessar:


En það er fjallað meira um eldvirkni á CNN.COM og þeir bregða sér eining til Ítalíu, svo sem sjá má hér:
https://www.cnn.com/2023/11/09/europe/supervolcano-campi-flegrei-italy-earthquake-bradyseism-scn
Það sem af er árinu hafa verið skráðir hálft fjórða þúsund jarðskjálftar á því svæði sem þeir eru að fjalla um og vélræna þýðingun er bara nokkuð góð:
,,Margir sérfræðingar telja að heimamenn ættu að vera betur í stakk búnir til að takast á við skjálftavirknina og möguleikann á eldgosi. Þann 5. október lagði almannavarnastofnun landsins fram uppfærða rýmingaráætlun sem kallar myndi þýða að um hálf milljón manna yrðu á ferðinni á 72 klukkustunda tímabili, á vegum sem margir heimamenn óttast að ráði ekki við svo mikla umferðarálag. Síðast þegar slík áætlun var skoðuð og borin fram, var árið 2019 og sýndu þær niðurstöður fram á að rýmingaráætlun vantaði.“
Ein kenningin er sú að kjarni Jarðarinnar sé farin að leka He-3 og að það sé ástæðan fyrir þessari aukningu á jarðskjálftum og eldvirkni.
https://www.cnn.com/2023/10/27/world/earth-core-helium-leak-scn
Myndin af þversniði Jarðarinnar er svo góð að ekki er hægt að stilla sig um að láta hana fylgja hér í lokin.


Færðu inn athugasemd