Óflokkað

  • Órólega deildin í Framsóknarflokknum klauf sig út úr flokknum eins og við munum, stikaði frá Háskólabíói yfir á Hótel Sögu, lagðist undir sæng og stofnaði í framhaldinu nýjan flokk sem fékk var nafnið Miðflokkur. Miðflokkurinn er smáflokkur sem minnkaði enn, þegar í ljós kom eftir ,,Borgarneskosningarnar“ að einn þeirra sem boðið höfðu sig fram í…

  • Maðurinn sem gerði það svo ljómandi gott í Úkraínu er til umfjöllunar hjá Fréttastofu Ríkisútvarpsins, þar sem vitnað er til erlendra miðla, s.s. BBC, CNN og N.Y.T. Þar kemur fram að hann hafur komið við víðar og við bætist Kína. Við sem týnum einu og öðru og jafnvel stundum sjálfum okkur, finnum dálítið til með manninum…

  • Formaður Samfylkingarinnar tók til umræðu á Alþingi hvernig skráningu á leiguhúsnæði fyrir ferðamenn getur verið háttað. Í ljós kom að fyrir tilstuðlan fjármálaráðherra er hægt að reka gistiþjónustu fyrir ferðamenn í húsnæði sem skráð er sem almennt íbúðarhúsnæði. Og það geta verið heilu blokkirnar! Í frásögn Ríkisútvarpsins í hádegisfréttum í dag þann 7. desember mátti…

  • Heyflutningar Á sjöunda áratug síðustu aldar, var staðan erfið hjá bændum á Austurlandi og víðar, en mun betri hjá sunnlenskum bændum. Þá var gripið til þess ráðs að binda hey í bagga til að minnka rúmtak þess og flytja það þannig með skipum til þeirra sem á þurftu að halda. Myndin sem hér fylgir með var…

  • Fólk er saman komið í hlýjunni og huggulegheitunum í Abu Dhabi til að ræða loftslagsmál og sölu á olíu. Það er gott til þess að vita að gott fólk geti fundið sér eitthvað til dundurs og skemmtunar. Og ekki er verra að það sé gert án útgjalda fyrir viðkomandi, að reikningurinn sé sendur vandræðalaust á…

  • Þegar karl nokkur liggur á dánarbeði upplýsir hann dóttur sína um að hann hafi komið undir sig fótunum með því að ræna banka. Haldi menn að nú standi til að rifja upp íslenska hrunið, sem sumir eru farnir að rita með stórum staf, þá er ekki svo. Leyndarmálið var dálítið öðru vísi og venjulegra. Við…

  • Þegar verið er í öðru landi en því sem maður þekkir best er að ýmsu að huga. Eitt er að borðtalvan trausta er ekki með í farteskinu og því verður að treysta á gamla og fartölvu sem man tímana tvenna. Það sem verra er að uppáhaldsbloggsíðan reynist ekki vera aðgengileg. Þessi færsla er prufa og…

  • Á vef Wikipedia er hægt að lesa eftirfarandi upplýsingar: ,,Sjómannaskólinn í Reykjavík var kennslustofnun sjómanna sem starfaði fyrst við Öldugötu í Reykjavík (Gamli stýrimannaskólinn) og síðan við Háteigsveig í Reykjavík. Sjómannaskólinn og síðar Vélskóli Íslands höfðu aðsetur við Háteigsveg, en þann 1. ágúst 2003 tók Menntafélagið ehf við rekstri skólanna og starfa þeir núna sem Tækniskólinn. Stýrimannaskólinn í Reykjavík var stofnaður með lögum hinn 22. maí 1890 en skólinn tók til starfa haustið 1891. Vélskóli íslands var…

  • CNN fjallar um samningaviðræðurnar milli Hamaz og Ísraels og væntanleg fangskipti. Við tökum eftir því að um er að ræða ,,gísla“ þegar rætt er um fangana hjá Hamaz, en þegar um er að ræða Ísrael, þá eru það ,,fangar“. Fram kemur, að um getur verið að ræða bæði konur og börn hjá báðum aðilum. Einnig…

  • Norður- kóreumenn skutu á loft njósnahnetti mörgum til hrellingar eftir því sem sagt er frá af Ríkisútvarpi allra landsmanna. Suður- Kóreustjórn fór í fýlu, sem kemur engum á óvart og Japanir telja sig þurfa að skoða málið. Myndin hér að neðan og textinn undir henni eru fengnir af Rúv. Ekki kemur fram hvort íslenska ríkisstjórnin…