Óflokkað
-
Þjóðin stendur á öndinni og bíður eftir eldgosi á Reykjanesskaga, en enginn veit hvenær það kemur, né hvort það kemur. Það er þó langlíklegast að það gjósi, því jörðin hristir sig líkt og hross sem risið er upp, eftir að vera búið að velta sér eftir reiðtúr, en hvort það gýs einhverntíma á næstu dögum…
-
Það er enginn ágreiningur (Segir engan ágreining ríkja um afstöðu Íslands – Vísir (visir.is)), volgir stólar standa stöðugir og upphlaup vinstrigræningjanna eru farin að minna á gjamm í litlum hvutta sem dregur sig í hlé eftir að hafa ýft kambinn dálítið um tíma. (Mynd af visir.is) Þannig er það og þannig hefur það verið og…
-
,,Bóndi er bústólpi og bú er landstólpi“, er stundum sagt, en við sjáum, af greinunum hér fyrir neðan, að það gengur á ýmsu og svo er að sjá sem máltækið sé ekki í hávegum haft. Við erum greinilega heppin, sé tekið mið af því sem er að gerast í Bandaríkjunum og sem fréttir hafa verið…
-
Í ágætri og trúverðugri umfjöllun um ástandið og ekki síst móralinn í Úkraínu, sem birtist á cnn.com í gær kemur margt fram sem margir telja sig hafa vitað, en sem ekki hefur verið haldið mikið á lofti. (https://www.cnn.com/2023/11/04/europe/ukrainians-face-prolonged-war-with-russia-in-stalemate-intl) Rætt er við fólk, sem er í mismunandi stöðu og allt virðist bera að sama brunni; bjartsýnistal…
-
Svo sem kunnugt er hafa gaslagnir verið rofnar milli Rússlands og vestur Evrópu. Í grein sem sjá má á miðlinum Russya Today rt.com er sagt frá því hvernig innflutningurinn hefur verið að aukast að undanförnu. Bandaríkin hafa legið undir grun hvað varðar skemmdir á Nord Strem lögnunum, en illa hafur gengið að fá fram sannanir.…
-
Í vefritinu ZeroHedge er ágæt grein um vægi miðausturlanda í viðskiptum í heiminum. Eins og við vitum þá er olían þar veigamikil en fleira kemur til s.s. sjá má á töflunni hér að neðan. Í niðurlagi greinarinnar segir: Í ljósi þess að olíuvinnsla gegnir mikilvægu hlutverki í hagkerfi heimsbyggðarinnar, bæði hvað varðar magn og verðmæti…
-
Netanyahu gengur trúlega vel að búa til hatur á ríki gyðinga, sé tekið mið af framkomu hans og hersins sem hann etur á varnarlaust fólk í Gaza. Við sjáum enn eina frásögnina af því sem er að gerast í https://www.wsj.com/world/middle-east/israel-faces-growing-international-pressure-to-pause-gaza-strikes-5f422195 en þær má reyndar finna svo miklu, miklu víðar, því fjölmiðlar út um allan heim…
-
Hér að ofan sjáum við nokkrar fyrirsagnir sem verið hafa í miðlum að undanförnu. Eins og sjá má eru ýmsar blikur á lofti, bæði varðandi orkubúskapinn en líka vatnsbúskapinn. Það síðarnefnda er ekki að hrella okkur hér á ísa köldu, svo talandi sé um og það er frekar vatn til orkuöflunar sem við þurfum á…
