Óflokkað

  • Á þessum gosdegi eru myndirnar þrjár og líklega skýra þær sig sjálfar Rétt er að geta þess, að systkinin lengst til vinstri voru góðir vinir ritara og eru þau á myndinni, að byggja upp saltforða líkama sinna eftir erfiðan dag. Allir eru vinir í dýraheimi svo sem sjá má og er það meira en segja…

  • Enn einu sinni er hafið eldgos á Reykjanesi svo sem sjá má á ýmsum miðlum. Á visir.is sést upphaf gossins og einnig má sjá það á myndbandi sem er í frétt Heimildarinnar sem segir ágætlega frá atburðinum. Rúv er dálítið á öðrum slóðum og þar á bæ hafa menn t.d. rekist á ,,vinnumenn“ sem ,,hafa…

  • Skrúfudagurinn er á morgun, laugardaginn 16/3/2024. Dagurinn hefur verið haldinn árlega og er kynning á skólanum og því sem hann hefur upp á að bjóða. Okkur sem til þekkjum þykir sem skuggi hvíli yfir, því ráðamenn þjóðarinnar virðast hafa komist að þvi, að Vélskólinn og Stýrimannaskólinn líka, séu best geymdir, einhverstaðar annarsstaðar, en í húsinu…

  • Nýr landnemi? Trúlega er of fljótt að segja sem svo, að um nýjan landnema sé að ræða en hann hefur þó sést á Stöðvarfirði og við sjáum hvað setur.

  • Menn eru ekki á eitt sáttir um flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Flest er tínt til til að færa rök fyrir því að hann verði að vera þar og hvergi annarstaðar. Hugmyndir hafa komið fram um aðra staðsetningu og ef einver slík er nefnd rísa upp framsóknarmenn ýmissa flokka og finna hugmyndinni allt til foráttu.  Þau sem…

  • Gamall vinur var kvaddur á dögunum eftir að hann hafði látist í bifreiðaslysi og þó notað sé orðið vinur hér í þessu sambandi, þá var það ekki þannig, að sambandið væri mikið.   Þræðir slitna stundum þegar hlutirnir breytast, en Guðjóns er minnst af góðu einu, hvort sem hann var að hjálpa til við að…

  • Okkur er sagt frá því hér, að það sem við vissum, höfðum fundið og notið er rétt. Það er sem sagt verið að staðfesta alkunnar staðreyndir sem við höfum vitað en nú er þetta á hreinu: Það er bæði hollt og gott að njóta návistar hunda! Þetta hafa menn vitað svo lengi sem við munum…

  • Á vef BBC.COM er fjallað um útbreiðslu þessa ógnvænlega sjúkdóms sem herjað hefur á fugla vítt og breitt um heiminn. Svo er að sjá sem hann hafi verið að þokast í átt Suðurskautslandsins og full ástæða er til að óttast um mörgæsastofninn sem þar er, ef flensan nær þangað. Hún er kominn til Suður Georgíu……

  • Í viðtali Helga Seljan við Kristrúnu Frostadóttur formann Samfylkingarinnar, er víða komið við. Svo er að sjá sem kominn sé fram á svið stjórnmálanna stjórnmálamaður nýrrar gerðar. Stjórnmálamaður sem vill takast á við málin samkvæmt rökum, frekar en gaspri og sleggjudómum, vill yfirvegun og faglegt mat, frekar en órökstutt hugsjónaflóð. Það er góð tilbreyting, sem…

  • Sumt er þannig að reynt er að fela það og víst er, að ef eitthvað þolir ekki dagsljósið, þá getur verið gott að koma því fyrir á afviknum stað. Þannig er það með fangelsi sem verndarar okkar og sérlegir vinir halda úti á Kúbu, landinu sem þeir þola ekki. Þegar ekki er lengur hægt að…