Óflokkað
-
Það er búið að vera kátt á hjalla hjá ríkisstjórninni síðustu dagana Leiðtogi Vinstri grænna er farinn að róa á forsetamið og við höfum fengið að fylgjast með þórðargleði Sjálfstæðismanna. Það er vissulega ástæða til að kætast, því eftir því sem Vg ,,minnkar“, aukast ýmsir aðrir möguleikar. Það er t.d. ekki útilokað að hægt verði…
-
CNN.COM greinir frá því að ráðist hafi verið á Zaporizhzhia kjarnorkuverið (ZNPP) og að það hafi skemmst sl. sunnudag í drónaárás, eftir því sem fulltrúar Sameinuðu þjóðanna segja. Þá er svo að sjá sem í Kænugarði sé eitt ,,helsta orkuver“ borgarinnar, sem hafi orðið fyrir verulegum skemmdum í í árásum Rússa, því í fyrirsögn Morgunblaðsins…
-
Forsætisráðherrann sem var fékk vitrun, komst að því að hún var á röngum stað á röngum tíma, ákvað því að hætta og gerast frekar forseti. Ákvörðun sem þessi hefur ýmsar afleiðingar og svo er komið, að eitt og annað er á eftir tímanum, ,,hefur tafist“ en það er ,,von“ um að eitthvað verði gert á…
-
Þær tókust á í sjónvarpi fyrir nokkrum dögum þessar konur og sú dökkhærða sem er til vinstri, vissi ekki hvaðan á hana stóð veðrið, fór illa út úr umræðunum og hefur lítið til henna fréttst síðan. Þar til að það brast á með hreinsunum og nú á að taka á því, því hreinsa skal út…
-
Við sjáum í heimi dýranna, það sem við vildum gjarnan að væri meðal okkar í mannheimum og víst er að margt er hægt að læra af dýrunum þegar að er gáð. Hér kúra saman einstaklingar af ólíkum stofni annars vegar, en til hægri, er sem ástin í sinni fegurstu mynd, birtist okkur. Gott væri nú…
-
Það er ró og friður yfir vinum okkar á myndinni og það virðist engu skipta þó allir séu ekki eins, en þó tökum við eftir því að á myndinni sem er lengst til hægri eru allir eins, ef svo má segja. Samt má greina óværð og ósamstöðu ef að er gáð. Þar er verið að…
-
Þann níunda mars síðastliðinn var sagt frá því í Morgunblaðinu að kjúklingabændur hafi komið á framfæri gagnrýni á Matvælastofnun. Gagnrýnin er hvorki mikil né alvarleg. Það er aðeins bent á að eitt eigi að ganga yfir alla, að allir eigi að vera jafnir og engin ástæða er til að ætla annað en að starfsmenn umræddrar…
-
Í grein eftir Þórð Má Júlíusson, sem birtist í Heimildinni 5/4/2024 er farið yfir stöðu ríkisstjórnarinnar og flokkanna sem að henni standa og rétt er að taka það fram að greinin er skrifuð áður en brotthvarf Katrínar Júlíusdóttur var opinberlega tilkynnt. Ríkisstjórnarflokkarnir eru í kreppu og það er ýmislegt sem henni veldur. Fylgið hefur hrunið…
-
Það er ekki góð einkunn sem fráfarandi formaður Bændasamtakanna gefur þeim sem við tóku eftir stjórnarskiptin hjá samtökunum. Byltingu sem segja má að gerð hafi verið af hálfu sauðfjárbænda og sem byggist á því atkvæðamagni sem búgreinin ræður yfir í krafti fjöldans sem hana stunda, en ekki verðmæti þeirra afurða sem framleiddar eru. Búgreinin er…
-
Jerusalem Post greinir frá því að Netanyahu hafi vaknað upp við vondan draum þegar árásin var gerð af Hamaz þann 7. október… ..og hver viðbrögðin voru og hverja hann spjalaði við og þar sjáum við kunnulegt nafn. Mann sem þegið hefur íslensk knús og huggulegheit. Skemmst er frá að segja, að síðan Hamaz gerði árásina…
