Óflokkað

  • Á blábrúninni rekumst við á greinarstúf um hugsanlegan frið í Úkraínu og þaðan er þessi mynd fengin. Úkraínar hafa viljað ræða um frið sem vonlegt er en hafa fram til þessa viljað ræða það á sínum forsendum og án aðkomu Rússa. Friðarumræða af því tagi er sérkennileg en nú er sem orðin sé breyting á…

  • Hver er þetta Lubbi spyr kisi? Æ, ég veit það ekki alveg en mér skilst að það sé létt í honum lundin svarar Lubbi. Það er samt ekki létt lundin hjá þeim sem þurfa að takast á við skotárásir og manndráp gerum við ráð fyrir og við getum séð í vandaðri umfjöllun Morgunblaðsins hvað gerðist…

  • Skotið var á Trump hinn bandaríska og niðurstaðan varð gat á hægra eyra. Biden vottaði keppinaut sínum samúð, skotmaðurinn lést í átökum við lögregluna og á Rúv- inu er sagt frá þessu á þann veg að Trump sé ,,í lagi“. Þar koma að því að forsetaframbjóðendur í Bandaríkjum nútímans væru í lagi og er ástæða…

  • Myndin tengist ekki efni greinarinnar en sýnir harða lífsbaráttu álfta á köldu vori. ,,Skatt­frjáls nýt­ing á sér­eign­ar­sparn­aði til að greiða nið­ur íbúðalán á að renna út í lok árs. Hús­næð­isstuðn­ing­ur­inn, sem hef­ur kostað rík­is­sjóð á sjö­unda tug millj­arða króna af farm­tíð­ar­tekj­um, nýt­ist að­al­lega efstu tekju­hóp­um sam­fé­lags­ins.“ ,,Það er erfitt að hætta þessu“ segir fjármálaráðherrann og fyrrum…

  • Í Heimildinni er viðtal við forstjóra Samkeppniseftirlitsins um samrunaferlið á Norðurlandi, sem fór af stað eftir lagasetningu á Alþingi og það er ekki ofsagt, að hann hefur ýmislegt við það að athuga. Hagræðing af því tagi sem búið er að gera á Norðurlandi, hefur farið fram á Suðurlandi, án afskipta Alþingis og án vandræða eftir…

  • Þegar þessi pistill var í smíðum heyrðist viðtal við formann Framsóknarflokksins, í 11 fréttum Rúv, og hann var harla kátur með ,,breytinguna“. Það hafa verið uppi spurningar um sakleysi í mannheimum, nú sem svo oft áður og síðustu dagana er sem ekki sé allt sem sýnist varðandi lagabreytingu um afurðastöðvar sem gerð var í flaustri…

  • Gerð var könnun á fylgi við stjórnmálaflokkana fyrir stuttu og niðurstaðan varð sú sem sjá má á myndinni sem fengin er úr umfjöllun Heimildarinnar. Það sem við blasir er að ríkisstjórnin er sú óvinsælasta í langan tíma og það þrátt fyrir náttúruhamfarirnar sem við öll höfum fylgst með og sem ættu að að þjappa þjóðinni…

  • Þeim tókst að koma málum svo fyrir að ekki verða stundaðar hvalveiðar þetta sumarið. Í fyrra gáfu þau ekki út leyfi til veiða fyrr en komið var haust og Framsókn og Sjálfstæðisflokkurinn létu sér vel líka. Þannig virkar ríkisstjórnarnefnan sem nú situr við völd og er samsett af þremur ólíkum flokkum. Eitt eiga þeir þó…

  • Það hefur verið frekar skrautlegt að fylgjast með kosningum og kosningabaráttu í Bandaríkjunum og Frakklandi síðustu daga og við sjáum á svip bjarnarins og húnsins að báðir eru ámóta hissa. Og það er annar björn sem fylgist líka með, gerum við ráð fyrir og þó hann sé alvarlega upptekinn, þá reiknum við með að hann…

  • Í Heimildinni er fjallað um netárásina á mbl.is sem sögð er vera í boði rússneskra hakkara. Nú hefði verið gott tilefni til að kalla sendiherra Rússa ,,á teppið“ og ræða við hann málin en það er ekki auðvelt eftir flumbrugang íslensks utanríkisráðherra, eins og flestir vita. Illt er að egna óstöðugan er sagt og enn…