Óflokkað

  • Það er þyngra en tárum taki að fylgjast með því hvernig þróunin hefur verið í Bandaríkjunum að undanförnu, en ekki má samt svo, að ríkjabandalagið hafi verið til sérstakrar fyrirmyndar í fortíðinni. Gaza, mynd af vef CNN Hinn nýi forseti Bandaríkjanna slær um sig og slær hinu og þessu fram og við vitum ekki hvort…

  • Þeir munu sitja við fætur húsbónda síns og dilla skottinu segir Putin og við vitum varla hverju við eigum að trúa. Við getum eins trúað því eins og hverju öðru á þessum undarlegu tímum.  Það gerðist á dögunum að nýútsprunginn utanríkisráðherra Íslands, brá sér í heimsókn til einkavinar íslenskra stjórnmálamanna Zelenskys til að færa honum…

  • Í fjölmiðlum hefur verið greint frá því að Sjálfstæðisflokkurinn eigi voða mikið bágt og eins og við vitum þá má rekja vanlíðanina til slæmrar útkomu flokksins í síðustu kosningum. Herbergið og flokkurinn.  Sjálfstæðisflokkurinn tapaði sem kunnugt er miklu fylgi í vetrarkosningunum sem fram fóru til Alþingis og tapi geta fylgt eftirköst.  Eftirköstin hafa birst með…

  • Við höfum fengið fréttir af því að hermenn frá Norður- Kóreu berjist með rússneska hernum við Úkraína en við höfum ekki mikið heyrt um vestræna bardagamenn, sem berjast með Úkraínum. Um þetta er fjallað á CNN.COM og þar er sem vonlegt er, mest sagt frá bandarískum hermönnum sem berjast í stríðinu við Rússa. Mynd úr…

  • Styrkjamálið hefur raskað ró en þó aðallega gefið blóð á tönn og eftir stendur, að einungis tveir flokkar hafa farið að reglum, að því ógleymdu að hinir opinberu afgreiðslumenn hljóta að hafa gleymt sér líka. Það er ekki nóg að segjast vera með bílpróf, maður þarf að geta sannað það! Og svo haldið sé áfram…

  • Á Alþingi sitja stjórnmálaflokkar sem eiga rétt á styrkjum en það þarf að skrá þá sem slíka, til að eiga rétt á styrkveitingunni. Súluritið er úr umfjöllun Vísis og sýnir Framlög til stjórnmálaflokka fyrir árið 2022. Styrkir til stjórnmálaflokka hafa verið í umræðunni og þá einkum styrkurinn til Flokks fólksins, sem svo kallar sig. Flokkurinn…

  • 30. nóvember 2024 birtist þessi ,,frétt“ í Morgunblaðinu. Eins og sést á skjáskotinu úr Morgunblaðinu, er þar mynd af fyrrverandi utanríkisráðherra en hafi verið rætt við hana þá fer ekki mikið fyrir því. Eftir því sem best er vitað er í fullu gildi varnarsamningur Íslands við Bandaríkin, auk þess sem Ísland er í NATO. Hvers…

  • Það er flestum ljóst að orkumálin eru í ólestri vegna vanhæfni ríkisstjórnarinnar sem þjóðin hafnaði svo eftirminnilega fyrir skemmstu. Spor þeirrar stjórnar hræða en við vonum að nýir vendir sópi betur. Skjáskotin eru úr Morgunblaðinu. 29. september 2024 birtist frétt í Morgunblaðinu þar sem í fyrirsögn má sjá hvernig staðan var og er enn. Í…

  • Deilt um keisarans skegg?  Hvenær er flokkur stjórnmálaflokkur og hvenær ekki, það er efinn þessa dagana.  Morgunblaðið hefur að undanförnu staðið fyrir umræðu um, að ,,Flokkur fólksins” sem svo er kallaður af meðlimum hans, sé ekki stjórnmálaflokkur, heldur félagsskapur fólks sem boðið hefur sig fram til starfa á Alþingi.  ,,Rétt skal vera rétt”, eins og…

  • Fyrir nokkru féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur sem varð til þess að fyrirhuguð Hvammsvirkjun í Þjórsá komst í uppnám.  Það góða í málinu virðist vera það, að dómurinn hefur orðið til þess að óvænt samstaða virðist hafa náðst um að við svo búið megi ekki standa.  Flokkarnir sem lufsuðust til að vera saman í ríkisstjórn…