Óflokkað

  • Teiknari The Guardian sér málin með sínum augum og dregur upp myndir af einum helsta leikaranum; leikaranum ægilega sem ,,stjórnar“ voldugasta ríki veraldar og nýtur þess að ,,slá um sig“. Svo er að sjá sem heimsbyggðin sé á leið til glötunar fyrir tilverknað auðríkisins volduga; ríkisins sem við Íslendingar treystum á til varnar skv. varnarsamningi.…

  • Við höldum okkur á Íslandi, skoðum glefsur úr pólitíkinni, sem er skrítin tík, eins og einhver maður sagði. Það virðist vera ,,heitt“ í Borgarstjórn Reykjavíkur, hnútuköstin ganga þar á víxl og fulltrúi Framsóknarflokksins varð fyrir því að líkja fulltrúum Sjálfstæðisflokksins við apa, sem eru reyndar skemmtilegar skepnur og skildar okkur mönnum! Þeir hafa það fram…

  • Það er eitt og annað sem komið getur af stað hugrenningum í kollinum á forseta Bandaríkjanna og nú er t.d. sagt frá því í The Guardian að hann sé hissa. Myndir úr safni Þeir sem stjórnað hafa herveldinu mikla haf verið duglegir við að þykjast vera að taka til og siða aðrar þjóðir en eru…

  • Það er víða hægt að virkja til orkuöflunar í landinu okkar og á mbl.is er fjallað um einn af möguleikunum. Að virkja fallvötnin er góður kostur og eftir stjórnarskiptin, sem urðu eftir vetrarkosningarnar og að Abúdabí ríkisstjórnin hvarf frá, hafa möguleikarnir margfaldast. Í umfjöllun blaðsins er þess getið að flöskuhálsinn sé tregða manna til að…

  • The Guardian segir frá peningaflutningamálinu mikla, sem úkraínskir aðilar voru staðnir að í Ungverjalandi. Forsætisráðherra Ungverjalands hefur skipað svo fyrir að verðmætin skuli kyrrsett um tveggja mánaða skeið á meðan málið sé rannsakað. Gullið og peningarnir voru flutt með bílum og verðmætið er talið vera um 40 milljónir dollara og þar af 35 milljónir í…

  • Það gengur á ýmsu í veröldinni þessa dagana og umhverfisvænska, en ekki kænska, bandarískra vina vorra birtist með frekar sérkennilegum hætti. Við sem eldri erum höfum lifað tímana tvenna og m.a. getað fylgst með hinum ýmsu tilburðum verndara okkar og vina til að bjarga heimsbyggðinni frá einu og öðru sem þeim finnst ekki vera eins…

  • Það er ráðist á lönd og íbúa þeirra af löndum, eða réttara sagt, af þeim sem fara fyrir ríkjum og í nútímanum er okkur boðið að fylgjast með hervirkjunum, í nánast ,,beinni útsendingu“. Teikningin er fengin úr Heimildinni og mun vera af friðarpostulanum mikla sem telur sig vera að bjarga veröldinni. Flestir miðlar flytja fréttir…