Heimildin rifjar upp afstöðu fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins og formanns Miðflokksins um afstöðuna til Evrópusambandsins.
Í ljós kemur að afstaða þeirra félaga er ein í dag og önnur á morgun ef svo má segja og afstöðunni virðist ráða hvar þeir standa í pólitíkinni þá stundina.
Ritari verður að játa það á sig að hann hefur ekki gert upp hug sinn um afstöðu til inngöngu Íslands í þetta viðskiptasamband og veit það eitt að það er ekki gallalaust frekar en annað.


Getur veriðvelverið að Sigga sé sætari sagði karlinn og bætt svo því svo við að vel gæti verið að Gunna sé betri.
Það virðist sem sagt vera svo, að Bjarni hafi skipt um skoðun en ekki kemur fram hvort það tengist því að hann hefur hætt þingsetu og sé kominn til annarra starfa.
Á þessum vettvangi verður ekki elst við skoðanir eða afstöðu Miðflokksins til þessara mála né annarra.

Víst eiga menn fullan rétt til að skipta um skoðun, taka rökum og mynda sér nýja skoðun á nánast hverju sem er.
Það sem ritari veltir fyrir sér er, hvort það er staðan sem þeir félagar eru í þá og þá stundina sem ráði afstöðu þeirra til þessara mála.
Hvað sem ræður, er áhugavert að þeir skuli báðir hafa skipt um skoðun en rétt er að taka fram að skoðun formanns Miðflokksins skiptir þann sem þetta skrifar engu máli, ekki frekar en flokkurinn sem hann stendur fyrir, eða hvort hann nagar í sig hrátt kjöt út í náttúrunni eða ekki.
Það eru skoðanaskipti fyrrverandi formanns Sjálfstæðisflokksins sem vekja áhuga og vekja upp spurningar.
Hvað er það sem ræður afstöðunni? Er það staða hans sem persónu þá og þá stundina sem ræður?
Eða er það eitthvað annað?
Ritari þessa bloggs hefur miklar efasemdir um hvort það sé heppilegt fyrir Ísland að ganga í ESB- ið en það skiptir í raun engu máli, því hann er ekki á neinum þeim vettvangi sem skiptir máli í þessu sambandi.
Það er vingulshátturinn sem vekur spurningar; ekki til málsins sem um er rætt, heldur hvort þeir séu í raun fulltrúar þeirrar stefnu sem þeir boða almennt í umræðunni, eða hvort stefnan sé ein í dag og önnur á morgun líkt og hjá leikara sem tekur að sér að túlka ýmis hlutverk á sviðinu?
Það kemur ekki á óvart varðandi Miðflokksmanninn en að Sjálfstæðismaðurinn skipti um skoðun með þessum hætti kemur á óvart.
En svo getur svo sem verið að ritari hafi misskilið leikritið algjörlega!
Myndirnar eru teknar úr grein Heimildarinnar.

Færðu inn athugasemd